Stríðsátök í tíma og rúmi
Conflicthistory er einstakur vefur þar sem birt er gagnvirkt landakort og meðfylgjandi tímalína yfir stríðsátök í heiminum í aldanna rás.
Conflicthistory nýtir kortaþjónustu Google ásamt því sem upplýsingar um stríðsátök um heim allan í fortíð og nútíð eru veiddar úr Wikipedia alfræðiritinu. Tímalínan er notuð til þess að afmarka ákveðin tímabil og þegar það er gert birtast merkingar á vefnum sem gefa til kynna stríðsátök á viðkomandi stöðum. Vefurinn er frábært verkfæri í kennslu og fer vel á gagnvirkri töflu.

Ég sakna þess að vísu að eiga ekki kost á því að leita eftir ákveðnum stríðsátökum eða ártali með því að slá inn texta. Það takmarkar nokkuð notagildi vefsins. Vonandi stendur það til bóta.


