Fyrst ber að nefna skeiðklukkuna frá Triptico. Hún býður upp á einfalda tímatöku ásamt niðurtalningu. hægt er að stoppa klukkuna tímabundið með pásuhnapp (e. pause).
Næst ber að nefna online-stopwatch.com vefinn sem inniheldur netlæga skeiðklukku ekki ósvipaða að virkni og skeiðklukkan frá Triptico.

Auk netlægu lausnarinnar býður Oline-Stopwatch vefurinn notendum að sækja nokkrar ólíkar tegundir teljara. Teljararnir eru á swf (flash) sniði og því einfalt að setja þá upp á vefsíðu eða keyra í gegnum vefskoðara. Kosturinn við að sækja hugbúnaðinn er að þá má nýta hann án þess án nettengingar.



Ég mæli svo sérstaklega með teljara sem hægt er að keyra samhliða öðrum forritum í PC tölvum og nota til tímatöku t.d. við verkefnavinnu nemenda. Sá teljari hefur þann eiginleika að hvíla ofan á öðrum forritum og er þannig ávallt sýnilegur. Slíkur tekjari hentar einstaklega vel þegar nemandi fær takmarkaðan tíma til að vinna við ákveðið verkefni í tölvunni eða kannski þegar nemandi fær frjálsan tölvutíma. Ég vel athygli á því að þessi teljari er ennþá í þróun. Forritið sækir t.a.m. teljarann af netinu en ætlunin er að gera hann að fullkomlega sjálfstæðri lausn. Annar galli er sá að nemendur geta endursett teljarann eða sett á bið. Vonandi verða þessir gallar lagfærðir fljótlega.

Auðvitað er það til baga að allar skeiðklukkurnar skuli vera með ensku viðmóti. En því miður lítið hægt að gera við því. Á hinn bóginn þá eru þær allar ókeypis sem er mikill kostur.


