Alls voru 695 verkefni samþykkt til þátttöku í tíu flokkum í verðlaunasamkeppni evrópska skólanetsins sem nú er haldin í níunda skiptið. Tilkynnt verður um sigurvegara í öllum flokkum á sértakri athöfn á Eminent ráðstefnunni í Vilníus í Litháen þann 26. nóvember nk. Hér má sjá lista yfir verkefnin 50 sem keppa til úrslita.
Í verkefninu sínu fæst Salvör við stafræna sögugerð (e. digital storytelling) með áherslu á leirkallamyndir (e. claymation) sem eru myndskeið unnin úr röð af kyrrmyndum. Hér fyrir neðan má sjá skemmtilegt sýnishorn af slíku verki.
Ég hvet alla sem vilja kynna sér nánar þessa tegund af stafrænni sögugerð að skoða kennsluvef Salvarar.


