Einsmellt á teikn til að opna
Hvernig get ég stillt Windows XP þannig að einungis þurfi að smella einu sinni á teikn á skjáborði til að opna forrit eða skjöl?
Möppur í Windows má stilla þannig að aðeins þurfi að smella einu sinni á teikn (e. icons) til að opna skjölin eða forritin sem þær vísa á. Er það gert til þess að einfalda aðgengi. Þar að auki er að hægt að stilla táknmyndir þannig að strik birtist undir þeim þegar músarbendillinn hvílir á þeim, ekki ósvipað og á mörgum vefjum.
Skjáborð Windows stýrikerfisins birtir innihald möppu sem nefnist desktop. Til þess að breyta virkni teiknanna á skjáborðinu verður því að finna desktop möppuna og breyta stillingunum á henni.
Til að opna desktop möppuna er smellt á Start hnappinn í Windows með hægrimúsarhnapp og valið Explore af listanum sem þá birtist. Í glugganum sem opnast er desktop mappan fundin í vinstri dálknum, þ.e. folders. Ef vinstri dálkurinn er ekki eins og sjá má á skýringarmyndinni hér fyrir neðan verður að smella á Folders hnappinn.

Þegar desktop mappan er fundin er stillingum hennar breytt með því að smella á Tools hnappinn á tækjastikunni efst og velja Folder Options af valseðlinum sem birtist.
Í Folder Options glugganum er liður sem heitir Click items as follows. Þar er valið Single-click to open an item (point to select) til þess að breyta virkni teiknanna þannig að einungis þurfi einn smell til að opna forrit eða skjal.

Einnig er hægt að velja Underline ion titles only when I point at them til að gefa til kynna með undirstrikun að mús hvíli á teikni. Underline ion titles consistent with my browser valkosturinn breytir hegðan teiknanna í samræmi við vefskoðara og birtir öll teikn undirstrikuð líkt og krækjur.
Höfundur ljósmyndar er Darren Hester



