Mulberry myndasafnið

Skrifað 29. November 2009
Flokkur: sérkennsla
Engar athugasemdir frá lesendum

Mulberry myndasafnið inniheldur yfir 1000 teikningar sem unnar eru undir leiðsögn talmeinafræðinga og sérfræðinga á sviði uppeldis og mennta. Myndirnar svipa nokkuð til PCS myndabankans frá Mayer-Johnson sem Boardmaker notendur þekkja vel. Ólíkt Boardmaker myndunum er Mulberry myndasafnið öllum aðgengilegt endurgjaldslaust.

Mulberry myndasafnið er til komið vegna þriggja ára þróunarverkefnis sem enn er unnið að. Markmiðið með verkefninu er ekki að keppa við núverandi útgefendur sambærilegra mynda heldur:

  • þróa myndabanka sem er ekki síðri að gæðum og jafnvel betri en þau myndasöfn þegar eru til staðar
  • veita ókeypis aðgang að myndabanka og tryggja stöðugan vöxt hans
  • þróa myndir sem höfða ekki síður til eldri notenda
  • þróa myndir á sniði (þ.e. wmf) sem gefur kost á notkun þeirra í núverandi hugbúnaði og vélbúnaði
  • gera myndir aðgengilegar á öðrum sniðum einnig, s.s. svg, og styðja þannig við nýsköpun

Mulberry myndasafnið er gefið út samkvæmt opnu höfundaleyfi, nánar tiltekið Creative Commons SA-BY leyfinu. Leyfisskilmálar Creative Commons SA-BY heimila notendum að dreifa myndum úr safninu að vild og nota í hvaða tilgangi sem er svo lengi sem rétthafa er getið og nýtt efni sem til verður sé gert aðgengilegt með sömu eða sambærilegum leyfisskilmálum.

Mulberry myndasafnið er aðgengilegt á vefnum straight-street.com. Þar er hægt að leita eftir myndum og sækja annað hvort stakar myndir eða safnið í heild sinni. Innskráningar er krafist áður en myndir eru sóttar. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá örlítið sýnishorn af myndunum í safninu.

mulberry

Mulberry myndabankinn er kjörinn fyrir sérkennara, talmeinafræðinga, leikskólakennara og aðra sem þurfa á vönduðum myndum að halda. Safnið jafnast enn sem komið er engan veginn við PCS myndirnar í Boardmaker að umfangi, en verðið svíkur engan.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni