Sýndarferðir um staði á Heimsminjaskrá UNESCO
Google og UNESCO, Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, hafa sameinast um að gera aðgengilegt á Netinu myndefni af völdum stöðum af heimsminjaskrá UNESCO á Google Earth og Google maps kortavefnum.
Heimsminjaskrá var stofnuð árið 1972 er skrá yfir staði sem tilnefndir hafa verið sem þjóðminjar af alþjóðlegri heimsminjaáætlun (International World Heritage Programme). Tilgangur skráarinnar er varðveisla staða sem teljast sérstaklega merkilegir frá mennignarlegu og/eða náttúrufræðilegu sjónarmiði og eru taldir hluti af menningararfi mannkyns (Wikipedia). Til þess að fá samþykki á heimsminjaskrá þarf viðkomandi staður að vera einstakur í heiminum og gerðust Íslendingar aðilar að henni árið 1995. Þegar þetta er skrifað inniheldur skráin 890 staði um heim allan, þar á meðal Þingvelli og Surtsey.
Nú þegar hefur samstarfsverkefni Google og UNESCO fært okkur netverjum 19 staði af Heimsminjaskrá að vafra um í þrívídd á Google Maps, Google Earth eða þinni eigin vefsíðu því á einfaldan hátt er hægt að varpa þrívíddarumhverfinu á hvaða vef sem er. Hér fyrir neðan gefst lesendum tækifæri að rölta í rólegheimum um Stonehenge. Ímyndið ykkur bara möguleikana í námi og kennslu.
Hér eru aðrir staðir sem hægt er að skoða á sambærilegan hátt:
- Stonehenge
- Pompei
- Historic Centre of Prague
- Historic Centre of San Gimignano
- Historic Centre of Siena
- Historic Centre of Urbino
- Historic Centre of Ceský Krumlov
- Historic City of Toledo
- Historic Walled Town of Cuenca
- Holy Trinity Column in Olomouc
- Mill Network at Kinderdijk-Elshout
- Old City of Salamanca
- Old Town of Ávila with its Extra-Muros Church
- Old Town of Cáceres
- Old Town of Segovia and it’s Aqueduct
- Paris, Banks of the Seine
- Royal Botanic Gardens, Kew
- Santiage de Compostela (Old Town)
Yfirlit yfir alla staðina sem þegar hafa verið myndaðir í þrívídd má finna hér. Hér fyrir neðan má einnig sjá kynningarmyndband frá Google um samstarfsverkefnið.
Á komandi mánuðum má búast við enn fleiri stöðum af Heimsmynjaskrá á Google Maps. Ég bíð spenntur þangað til.


