Fleiri netbundin smáforrit
Hér eru vísanir á fleiri ókeypis en vönduð netlæg smáforrit í boði Triptico. Þau fara sérlega vel á gagnvirkri töflu í kennslustofu en henta auk þess ágætlega til brúks í venjulegum skjám einstaklingstölva.
Teningar
Smellt er einhversstaðar á skjáinn til þess að kasta teningunum. Tvær aðrar útgáfur til þar sem á hliðarnar á teningunum (teningnum í öðru tilfellinu) eru rituð spurnarorð ekki tölur. Gæti komið sér vel í enskukennslu. Hægt er að smella á myndina til að prufukeyra venjulegu útgáfuna. Hér er svo síðan sem inniheldur allar útgáfurnar og frekari upplýsingar um þær.
Stigatafla
Hér er einföld en sniðug stigatafla þar sem hægt er að telja stig fyrir allt að sex lið (eða sex nemendur). Kjörin að nota með skjávarpa t.d. þegar sett er upp spurningakeppni í kennslustofunni. Hægt að velja liti á ramman utan um stigin (smellt á augun) og skrá nöfn undir tölurnar. Talningin fer þannig fram að smellt er á annað hvort mínusinn eða plúsinn í viðkomandi ramma. Hér er hægt að keyra forritið og lesa frekari upplýsingar um það.
LinkUp

Linkup er stórsniðugt verkefni þar sem nemendu tengja einstök orð við flokka með því draga línur úr flokkunum neðst á skjánum yfir í orðin. Kennarar geta vistað verkefni sem þeir búa til í þessu forriti. Hér er sjálft forritið aðgengilegt og frekari upplýsingar um það.
Einföld reiknivél

Reiknivélin býður upp á algengustu reikniaðgerðir og hentar vel til nota á skjávarpa, t.d. þegar verið er að kenna notkun á vasareiknum. Hér er síðan á vef Triptico með forritinu og öllum upplýsingum.
Hér má svo finna greinargott yfirlit yfir allt vefefnið sem Triptico fyrirtækið hefur gert aðgengilegt á Netinu.




