Frjáls og flott tónlist á Jamendo

Skrifað 16. December 2009
Flokkur: tónlist
Ein athugasemd frá lesendum

Jamendo tónlistarvefurinn er sneysafullur af allrahanda tónlist sem öll er gefin út með opnum höfundarleyfum. Þangað er kjörið að sækja tónlist og nýta í skólastarfi, s.s. við gerð myndskeiða, kynninga eða margmiðlunarefnis svo fátt eitt sé nefnt. Jamendo er einnig vettvangur fyrir tónlistarfólk að koma sér og verkum sínum á framfæri.

Frjáls tónlist hefur virkilega verið að sækja í sig veðrið á síðustu árum og nú er svo komið að vefir eins og Jamendo draga að sér hundruði þúsunda notenda, tónlistarmenn og áhugafólk um tónlist. Lögin sem hægt er að streyma gegnum Netið eða sækja endurgjaldslaust á skipta einnig þúsundum. Eins og gefur að skilja er misjafn sauður í mörgu fé og á Jamendo má finna allt frá frumstæðum byrjendaverkum upp í vandaðar tónsmíðar.

Þegar þetta er skrifað er ég að hlusta á Alexander Blu sem gæti sómt sér í hvaða tónlistarspilara sem er. Eða hvað finnst þér?

  



Jamendo var hrint af stokkunum árið 2003 og er líklegast einn stærsti og vinsælasti vefur sinnar tegundar. Samkvæmt tölum sem þar eru gefnar upp á fær vefurinn yfir 2.4 milljónir heimsókna mánuð hvern og sækja notendur allt að 500.000 skrár daglega.

Ég hvet kennara til þess að kynna sér vel vandaða vefi eins og Jamendo og brýna fyrir nemendum mikilvægi þess að virða höfundarrétt þegar þeir nota tónlist eða myndefni í verkefnavinnu. Jamendo er bara einn vettvangur af mörgum þar sem hægt er að sækja tónlist sem heimilt er að nota endurgjaldslaust í skólastarfi. Það skal tekið fram að tónlist sem sótt er á Jamendo má einnig nota við efni sem gefið er út í ágóðaskyni (e. commercial use). Í slíkum tilfellum verður að greiða fyrir efnið samkvæmt viðkomandi leyfisskilmálum.

Þessi færsla er skrifuð í tilefni af 7 ára afmæli Creative Commons.


Tengt efni

1 athugasemd við “Frjáls og flott tónlist á Jamendo”

  1. baldur mcqueen skrifar:

    Góð ábending.

    Ég nota Jamendo og Magnatune reglulega. Með Rhythmbox (Linux) má fá öll lögin inn á lista, svipað og í iTunes.

    Ég held að áhugasamir Windows notendur geti hlaðið niður hinu stórgóða forriti Songbird (www.getsongbird.com) og sett Jamendo og Magnatune inn sem viðbætur þar. Þá sést úrvalið líkt og í iTunes.

    Á Jamendo eru um 200.000 lög/tónverk í dag – á Magnatune eru um 10.000 lög/tónverk í dag.

    Vel þess virði að skoða þetta, enda stórgott efni inn á milli.

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni