Til þess að leita með aðstoð Sprixi er einfaldlega slegið inn leitarorð og niðurstöður birtast. Í sameiningu geta notendur Sprixi aukið gæði þjónustunnar með því að tilgreina hvort myndefni er í samræmi við leitarorð. Hér að ofan var t.a.m. slegið inn leitarorðið Koala og eins og sjá má hitta velflestar niðurstöður beint í mark. Velflestar en ekki allar.
Notendur geta gefið hverri einstakri mynd sem Sprixi finnur einkunn sem gerir niðurstöður leitarvélarinnar smátt og smátt nákvæmari. Þetta er ekki ósvipuð hugsun og Google nýtir í Image Labeler.
Þegar svo hentug mynd er fundin er hægt að vísa í hana á Sprixi eða sækja með eða án upplýsinga um rétthafa og leyfistegund.
Þegar valið er að sækja mynd ásamt upplýsingum um höfund og leyfi birtast þær sem texti (á ensku) neðst á myndinni. Einnig er hægt að sækja HTML kóða til að vísa í myndina af hvaða vefsíðu sem er. Þegar það er gert er myndin sjálf hýst hjá Sprixi.
Sprixi leitarvélin er kjörin í kennslu þar sem nemendur geta notað hana til að leita eftir hentugu myndefni sem heimilt er að nýta í hvers kyns verkefnavinnu án endurgjalds.






snilld