Close

Svona gerum við

Námsefni

Einfaldir rofaleikir

Ég hef alls ekki gert nógu mikið af því að fjalla um hentugan hugbúnað fyrir einstaklinga sem stýra tölvunni með aðstoð rofa. Hér verður lítillega bætt úr því með því að benda á nokkra sniðuga netlæga smáleiki.

Leikirnir eru allir á flash sniði og finnast á vefnum HelpKidsLearn.com. Leikirnir eiga þeð ennfremur sammerkt að vera einfaldir í notkun go styðja við rofabúnað. Á umræddum vef má finna fleiri leiki sem margir styðja við rofabúnað. Sumir henta samt illa þar sem þeir eru ekki á íslensku. Hægt er að smella á meðfylgjandi myndir til að prufukeyra leikina.

Kastaðu í kókoshneturnar

coconut
Hentu boltanum í kókoshneturnar með því að styðja á rofann (eða bilslánna). Felldu allar kókoshneturnar til þess að sjá þær dansa. Allar frekari upplýsingar um leikinn má finna hér.

Töfradrykkurinn

rofaleikur2
Blandaðu þinn eigin töfradrykk og drekktu hann til að sjá hver áhrifin verða. Áður en leikurinn hefst er hægt að ákveða hvort notast er við mús, lyklaborð eða rofabúnað. Frekari upplýsingar hér.

Galdraeggin

galdraeggid
Bíddu þangað til þú sérð egg birtast á skjánum. Studdu þá á rofann (eða smelltu á músarhnappinn) til þess að brjóta eggið og sjá hvaða galdraveru það hefur að geyma. Frekari upplýsingar hér.

Náðu nagdýrunum

Nagdýrin
Fylgstu vel með nagdýrinu þar sem það fer niður rörið. Sláðu það svo í hausinn með dagblaðinu þegar þú sérð það birtast. Frekari upplýsingar hér.



Tengt efni

Skráðu athugasemd