Youtube + spjall = Synchtube

Skrifað 02. January 2010
Flokkur: web 2.0
Engar athugasemdir frá lesendum

Synchtube er nýtilkominn vettvangur sem sameinar YouTube myndskeið og hefðbundið rauntíma spjall. Synchtube gæti hæglega orðið mikilvæg viðbót við verkfærakistu fjarkennarans sem getur með aðstoð þess skapað lifandi umræðu meðal nemenda um efni sem hann setur fram í myndskeiði.

SynchTube getur varla verið einfaldara í notkun. Þegar vefurinn er heimsóttur blasa við notendum tveir valkostir. Annað hvort að stofna til eigin umræðu eða teka þátt í opinni umræðu sem þegar er hafin.

synchtube1

Til þess að stofna eigin umræðuvettvang er smellt á [Create Room] hnappinn og slóð að YouTube myndskeiðinu sem ætlunin er að horfa á límd í reitinn neðst í hægra horni. Þar fyrir opan er valið hvort spjallvettvangurinn eigi að vera lokaður (e. private) eða opinn almenningi. Hver sem er getur tekið þátt í umræðu sem er opin.

synchtube2

Til þess að bjóða öðrum að horfa á myndskeiðið og taka þátt í spjallinu er slóðin að vettvangnum afrituð (sjá efst í hægra horni) og send til þeirra sem taka eiga þátt.

Sá sem stofnar umræðuvettvang ræður hvaða myndkskeið er þar til sýningar og getur skipt um myndskeið að vild. Stofnandi umræðu getur einnig stoppað spilun á viðkomandi myndskeiði hvenær sem er og hefur sú aðgerð þau áhrif að myndskeið þátttakenda stoppa einnig á sama stað. Tekið skal fram að Synchtube er ennþá í betaútgáfu og væntanlega verður fleiri eiginleikum bætt við þjónustuna í náinni framtíð. Ég saknaði þess t.d. að geta ekki varpað umræðu yfir á eigin vef. Það gæti t.d. verið kostur að varpa umræðu um myndskeið inn í námsstjórnunarkerfi.

Annars er notkun á myndskeiðum af Netinu er engin nýbreytni í skólastarfi en vissulega eykst notagildi þeirra til muna þegar hægt er að stofna til rauntíma umræðu samhliða myndskeiðinu. Auðvitað þarf sú umræða ekki að vera tilkomin með þjónustu á við Synchtube. Þannig mætti vel hugsa sér að nota Skype eða annan sambærilegan hugbúnað.

Svo má einnig benda á að Synchtube er alls ekki eina þjónustan sem samþættir YouTube og rauntímaspjall. Á tilraunastofu YouTube (Testtube) er m.a. fengist við þróun á sambærilegum vettvangi sem nefnist Streams.

youtube-stream

Ég hef örlítið fiktað í YouTube Streams þjónustunni. Hún býður upp á svipaða virkni og Synchtube en fleiri valkostir. Fleiri valkostir hafa reyndar í för með sér aukið flækjustig þannig að ég ætla ekkert að fullyrða um hvor þjónustan er betri. Ég er reyndar mun spenntari fyrir YouTube Realtime sem fáir útvaldir hafa þegar fengið aðgang að. Ég er því miður ekki í þeirra hópi. Ef einhver er svo heppinn að eiga boðsmiða má viðkomandi hafa mig í huga.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni