Crayon Physics Deluxe á tilboði sem erfitt er að hafna
Í tilefni af eins árs afmæli Crayon Physics Deluxe hefur fyrirtækið Kloonigames ákveðið að bjóða netverjum þennan frábæra leik á einstöku tilboði. Fyrirkomulagið er hið sama og þegar Radiohead bauð In Rainbows til sölu á Netinu sællar minningar, þ.e. þú borgar það sem þú vilt.
Að sjálfsögðu væri ég ekki að vekja athygli á þessu tilboði nema vegna þess að Crayon Physics Deluxe er leikur sem ég get vel hugsað mér að nota í skólastarfi. Ekki einungis inniheldur hann fjöldan allan af haganlega útbúnum þrautum sem krefjast bæði útsjónarsemi og hugkvæmni spilara heldur geta notendur búið til sínar eigin þrautir. Leikin má kynna sér betur með því að horfa á meðfylgjandi myndskeið eða sækja prufuútgáfu.
Tilboðið stendur til 15. janúar. Greiðslum er miðlað í gegnum Paypal. Ekkert lágmark er á greiðslunni en ég mun nú örugglega borga nokkra dollara fyrir svona góðan leik.


