Skemmtilegar þrautalausnir

Skrifað 14. January 2010
Flokkur: leikir
4 Athugasemdir frá lesendum

Leikir eru vinsæl afþreying á Netinu og rata ósjaldan í tölvur nemenda hvað sem kennaranum kann að finnast um slíkt athæfi. Hér er vandaður leikur sem byggir á sniðugum þrautalausnum. Þær eru erfiðari en ætla mætti við fyrstu kynni.

Góðir leikir eru heillandi fyrirbæri sem krefjast oftar en ekki skapandi hugsunar, útsjónarsemi og þrautseigju. Þeir reyna á samhæfni handa og augna og halda spilaranum hugföngnum á meðan hann glímir við stöðugt erfiðari lausnir. Þegar ég gef nemendum mínum frjálsan tíma í tölvunni, kannski sem umbun fyrir góða vinnu, þá vil ég helst að þeir takist á við eitthvað sem er skemmtilegt og á sama tíma krefjandi. Bloxorz er einmitt þannig leikur og blessunarlega laus við tilgangslaust ofbeldið sem því miður einkennir allt of marga tölvuleiki í dag.

Ég tilkynni það einnig hér með, að ég hef ákveðið að bæta við nýjum lið á vefinn minn þar sem ég safna leikjum sem ég tel vænlega í skólastarfi. Skiptir þá ekki máli hvort þeir eru ætlaðir til afþreyingar eða tengdir einhverri verkefnavinnu. Bloxorz er fyrsti leikurinn sem fer á þennan sess en fleiri munu bætast við í náinni framtíð. Ég mun opna þessa síðu mjög fljótlega og tilkynna það þá sérstaklega (vil safna aðeins fleiri leikjum fyrst).

Látið mig endilega vita ef þið þekkið virkilega góða leiki. Helst vil ég leiki sem hægt er að varpa á aðra vefi líkt og Blozorz. Ég er ekki eins spenntur fyrir leikjum á leikjasíðum sem eru uppfullar að auglýsingum. Ég er alveg til í að fjalla um leiki sem eru til sölu, en auðvitað er ég ginkeyptari fyrir ókeypis efni.

p.s.
Stundum hefur leikurinn ekki viljað birtast með færslunni og hef ég þá þurft að endurhlaða (e. refresh) síðunni (einfaldast að styðja á F5 lykilinn).


Tengt efni

4 athugasemdir við “Skemmtilegar þrautalausnir”

  1. Margrét Rósa skrifar:

    Takk fyrir þetta. Ég er framhaldsskólakennari og hef áhuga á því að nemendur mínir séu í gáfulegum leikjum frekar en heimskulegum. Mun örugglega nýta mér síðuna þína.

  2. Guðrún skrifar:

    hjálp er föst á borði 7 … Mér finnst að þú eigir að senda mér lausnina áður en ég verð brjáluð ! :)
    please !

  3. Guðrún skrifar:

    Það var víst borð 9 , komin yfir það . Takk ! skemmtilegar heilaþrautir sem fá mann til að öskra ! :)

  4. bjarki skrifar:

    er að lónlíast í þessu og ER KOMINN Á 25 LEVEL :D :D:D:D:D:D:D:D:D:D:D

Skráðu athugasemd

What Does it Mean to be Literate?

    Af sama tagi

    Nýlega lesið