Noteflight – draumur tónlistarkennarans

Skrifað 20. January 2010
Flokkur: tónlist
Engar athugasemdir frá lesendum

Noteflight er einstakur, netlægur hugbúnaður sem ég er viss um að mun gleðja mjög tónmenntakennara og vonandi alla aðra sem hafa áhuga á tónlist og tónsmíðum. Í stuttu máli sagt þá er Noteflight öflugur vettvangur til að skapa, skrá og miðla tónsmíðum. Ekki sakar að þjónustan er ókeypis fyrir áhugafólk.

Noteflight inniheldur nótnaritil sem er í senn öflugur og einfaldur í notkun og hentar vel fyrir jafnt byrjendur sem lengra komna. Meðfylgjandi myndskeið sýnir hversu einfalt er að skrá nótur í nótnaritli Noteflight.


Notendur Noteflight geta ákveðið að hafa eigin tónsmíðar alveg útaf fyrir sig eða þeir geta deilt þeim með öðrum notendum. Nú þegar er til á vef Noteflight mikið safn nótna sem hægt er að sækja, hlusta á og ekki síst læra af. Tónsmíðum er einnig hægt að varpa (e. embed) yfir á aðra vefi líkt og ég hef gert hér fyrir neðan.

Ég hef sérstakan áhuga á því að heyra viðbrögð tónlistarkennara við þessum hugbúnaði. Ég veit að hann er ekki eini sinnar tegundar en sá eini sem er fullkomlega netlægur að því ég best veit. Er einhver kannski að nota Noteflight í kennslu nú þegar?


Tengt efni

Skráðu athugasemd