Moodle 2.0 – hvers má vænta?

Skrifað 08. February 2010
Flokkur: námsumhverfi
Ein athugasemd frá lesendum

Í febrúar getum við átt von á fyrstu betaútgáfu af Moodle 2.0 námsstjórnunarkerfinu. Útgáfan boðar viðamestu uppfærslu á kerfinu frá því Ástralinn geðþekki Martin Dougiamas opinberaði Moodle 1.0 þann 20. ágúst árið 2002.

Moodle 2.0 hefur verið lengi í smíðum og eðlilega eru væntingar til útgáfunnar miklar. Eftir að hafa sett upp Moodle 2.0 á eigin tölvu og kynnt mér skrif annarra sem hafa skoðað kerfið er ég nokkuð viss um að útgáfan tákni vatnaskil í þróun Moodle. Hér á eftir fer stutt umfjöllun um nokkrar af helstu nýjungunum í Moodle 2.0.

Moodle 2.0:

  • Lítur miklu betur út. Gjörbreyting er á virkni og uppsetningu sniðmáta/þema og meiri sveigjanleiki í boði hvað varðar hönnun. Ný grunnsnið munu fylgja útgáfunni og væntanlega verður þess ekki lengi að bíða að netverjar láti reyna á nýju möguleikana.
  • Mun gera fjölmarga hluti á annan hátt en fyrri útgáfur enda mikið af nýjum kóða. Það má því allt eins búast við nokkru umstangi við uppfærslu úr útgáfu 1.x yfir í 2.0. Notendur sem eru með uppsettar útgáfur eldri en 1.9 verða að uppfæra í Moodle 1.9 áður en uppfært er yfir í 2.0. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig þessum málum verður háttar en ég veit þó að gera verður breytingar á öllum sniðmátum eigi þau að vera samhæfð við Moodle 2.0. Ég geri einnig ráð fyrir því að fjölmargar (kannski flestar) viðbætur verði að aðlaga að nýju útgáfunni.
  • Inniheldur nýtt viðmót á prófakerfinu. Þar að auki hafa fjölmargar lagfæringar verið gerðar á prófahlutanum.
  • Skartar uppfærðu bloggkerfi en getur auk þess tengst öðrum blogglausnum, .s.s Blogger eða Wordpress. Hér má lesa meira um þetta verkefni.
  • Getur tengst vefþjónustum (e. web services).  Þetta er mikilvægt skref sem á eftir að bjóða upp á fjöldan allan af spennandi möguleikum.
  • Getur átt samskipti við útværar gagnahirslur (e. repositories). Þessi kostur gerir notendum kleift að tengjast netlægum þjónustum eins og t.d. Flickr, Box.net, Picasa, Youtube, Google Docs eða Mahara svo fátt eitt sé nefnt. Sem dæmi um hvað þetta þýðir í raun þá geta kennarar sótt efni úr gagnahirslu sem þeir hafa aðgang að, t.d. myndir úr Flickr, beint úr Moodle ritlinum. Hér má lesa meira um gagnahirslur og Moodle 2.0.
  • Meðhöndlar skrár á allt annan hátt en áður. Moodle 2.0 geymir upplýsingar um skrár í gagnagrunni og er það grundvallarbreyting frá því sem var. Þessi breyting þýðir m.a. að mögulegt er að samnýta skrár á milli áfanga. Á hinn bóginn verður ekki lengur hægt að “ftp-a” skrám beint inn í möppur í áföngum.
  • Leyfir athugasemdir (e.comment) við öll aðföng og viðföng. Ég er mjög hrifinn af þessum möguleika og á örugglega eftir að virkja hann í minni kennslu þegar þar að kemur.
    Athugasemdir
    Athugasemdirnar virka þannig að kennari setur blokk við aðföng eða viðföng þar sem hann vil gefa kost á athugasemdum.
  • Gerir kennurum kleift að skilgreina lærdómsviðmið (e. outcomes). Lærdómsviðmið eru skilgreiningar á færni/leikni, þekkingu og hæfni sem einstaklingur hefur tileinkað sér við námslok (sjá þessar orðaskýringar).
  • Inniheldur almennilegan ritil. HTMLArea ritillinn sem Moodle hefur skartað fram til þessa er löngu úreltur. Moodle 2.0 inniheldur sérsniðna útgáfu af TinyMCE ritlinum sem er forritaður í Javascript og keyrir í öllum helstu vefskoðurum.
    moodle-ritill
    Nýi ritillinn einfaldar til muna efnisvinnslu svo ekki sé minnst á alla nýju eiginleikana sem hann inniheldur.
  • Býður upp á skilyrtan námsferil. Með því á ég við að hægt er að stýra aðgengi nemenda að t.d. verkefni eða prófi með ákveðnum forkröfum. Nemandi fær t.a.m. ekki aðgang að verkefni 2 fyrr en hann hefur lokið verkefni 1 með fullnægjandi árangri.
    conditions
    Ég veit að þetta er virkni sem margir hafa beðið lengi eftir. Þar á meðal ég sjálfur.
  • Er kröfuharðari en fyrirrennarar sínir. Moodle 2.0 gerir t.a.m. lágmarkskröfur um PHP 5.2.8.

Auk ofangreindra nýjunga hafa ótal lagfæringar stórar jafn sem smáar verið gerðar á Moodle.

Nokkrir mánuðir munu líða frá fyrstu betaútgáfu þangað til nothæf útgáfa mun líta dagsins ljós. Sá tími verður nýttur í ítarlegar prófanir sem allur almenningur hefur kost á að taka þátt í. Ég mun fjalla mun betur um Moodle 2.0 í náinni framtíð.

Heimildir

Did You Know Moodle 2.0 Will….?
Moodle 2.0 release notes
Moodle 2.0 Roadmap


Tengt efni

1 athugasemd við “Moodle 2.0 – hvers má vænta?”

  1. Salvör° skrifar:

    Afar fróðlegt. Ég er með moodle verkefni sem skyldu núna hjá nemendahóp, spurning að bíða eftir moodle 2.0 fyrir þau ef það kemur fljótlega.

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni