Nýjasta myndasafnið sem varð á vegi mínum ekki fyrir svo löngu nefnist Edupics og get ég hiklaust mælt með því. Ég hef þegar nýtt myndir af Edupics í verkefnagerð með nemendum mínum. Þannig er mál með vexti að við vorum að vinna dagatal fyrir febrúarmánuð í ritvinnslu og vantaði myndir sem tengjast árstíðunum. Þær fundum við hér.
Edupics er einungis eitt af fjölmörgum myndasöfnum þar sem hægt er að sækja vandaðar myndir til að nota á löglegan hátt í skólastarfi. Flest söfnin sem ég vísa á hafa að geyma myndir sem gefnar eru út samkvæmt opnum notendaskilmálum. Ég bendi einnig á vefi þar sem hægt er að kaupa myndefni, en þá einvörðungu vefi þar sem verðinu er stillt mjög í hóf. Sjálfur kaupi ég gjarnan myndir á istockphoto þegar ég finn hvergi annarsstaðar myndefni við hæfi.
Það er heldur ekki úr vegi að skoða hvernig hægt er að leita eftir myndum á Flickr sem notendur hafa gert aðgengilegar samkvæmt opnum notendaskilmálum (creative commons). Ég hvet kennara til þess að kynna fyrir nemendum sínum löglega notkun myndefnis og þar með hvar hægt er að sækja myndir sem heimilt er að nota í eigin verkum.


