Eitt slíkt verkfæri sem við höfum nýtt okkur á Starfsbraut FB er Ritfærni frá Námsgagnastofnun. Sjálfur er ég ekkert allt of hrifinn af vefforritum Námsgagnastofnunar; finnst þau á heildina litið frekar óspennandi, lokuð og takmörkuð. Inn á milli má þó finna ágætar hugmyndir og Ritfærni er ein af þeim.
Undir liðnum gagnvirkt efni í Ritfærni er hægt að velja mannlýsingar. Þar gefst notendum kostur að setja saman persónu með því að velja fatnað og ákvarða líkamsbyggingu. Að því loknu skrifa nemendur mannlýsingu. Það truflar mig reyndar dálítið í þessu verkfæri frá Námsgagnastofnun hvað persónan er lítil.
Feeling Bubbles er annað verkfæri á Netinu sem komið getur að góðum notum en með því má prenta út verkefnablöð sem innihalda andlitsmynd og hugsanablöðru (eða hvað má kalla þetta?). Hugmyndin er sú að annað hvort kennari eða nemendur velji andlit/tilfinningu til að nota sem kveikju að textasmíði.
Ofurhetjusmiðjan annar vefur þar sem nemendur geta skapað eigin persónu og valið bæði útlitseinkenni og hæfileika. Það er auðvitað galli að vefurinn er á ensku, en úrræðagóðir kennarar þurfa þó ekki að láta það koma í veg fyrir að hann sé nýttur í skólastarfi. Svo má einnig nota þennan vef og aðra sambærilega (s.s. þennan) í enskukennslu.
Enn eitt verkfærið sem reyndar er til í bæði karl og kvenkyns útgáfu nefnist Furry Dollmaker. Um notkun þess í skapandi skrifum gildir það sama og um ofurhetjusmiðjuna, þ.e. nemendur setja saman persónu sem síðan verður kveikjan að textaskrifum. Furry Dollmaker forritin bjóða upp á örlítið meiri sveigjanleika en bæði Ofurhetjusmiðjan og Ritfærni þar sem nemendur draga fatnað og líkamshluta yfir á dúkkuna í stað þess að velja með því að smella á músarhnapp. Furry Dollmaker hefur einnig stærðina umfram forrit Námsgagnastofnunar og hentar þar að leiðandi mun betur með skjávarpa. Á hinn bóginn er það galli að það skuli vera á ensku.
Hér getur svo að líta karlkyns útgáfuna. Hér er annað efni eftir saman höfund sem höfðar líklegast frekar til stúlkna.
Það væri virkilega gaman að heyra frá ykkur. Ég er sérstaklega áhugasamur um að heyra hvernig upplýsingatæknin er notuð í skapandi skrifum og þá hvort og hvaða netlægu verkfæri eða vefi þið eruð að nota. Það er svo ótal mikið að spennandi möguleikum þarna úti og það sem ég hef bent hér á er einungis toppurinn á ísjakanum.







