Púslað á Netinu

Skrifað 07. March 2010
Flokkur: ókeypis
Engar athugasemdir frá lesendum

Jigs@aw Puzzle er að mínu viti eitt vandaðasta forrit sem völ er á til að búa til og leika með stafræn púsluspil. Grunnútgáfan kostar rétt tæpa 10 dollara og er fáanleg á íslensku. Nýlega rakst ég á netlæga útgáfu af Jigs@w Puzzle sem inniheldur að vísu ekki nánda nærri alla eiginleika upprunalega forritsins en er þó glettilega góð. Hún er þar að auki ókeypis sem hlýtur að teljast mikill kostur.

Netlæga útgáfan af Jigs@w Puzzle nefnist Jigsaw Planet og býðst þar hverjum sem vill að setja saman púsluspil úr stafrænum myndum eigin eða annarra. Púsluspil sem búin eru til á Jigsaw Planet er hægt að spila á staðnum, senda til vina og kunningja eða varpa á vefinn að vild.

Þegar búin eru til púsluspil á Jigsaw Planet er hægt að velja um 7 stærðir af púsluspilum með 10 til 120 púslum. Einnig er hægt að velja um 8 mismunandi útlit á sjálfum púslunum, þ.e. einstaka bútum. Leikinn má svo gera erfiðari með því að heimila spilurum að snúa púslunum (notið örvatakka á lyklaborðinu til þess). Hér má sjá sýnishorn af stjórnborðinu.

buid-til-pusl

Púsluspilið hér fyrir neðan bjó ég til úr stafrænni ljósmynd sem dóttir mín tók. Ég valdi púsl með 40 bitum sem hægt er að snúa.

Hér er bein slóð að sama púsluspili. Ég komst að því þegar ég bjó þetta púsl til að innsendar myndir mega ekki vera stærr en 3MB. Ekki þarf að búa til sérstakan aðgang þegar púsl er búið til sem þýðir væntanlega að notendur munu ekki hafa yfirlit yfir þau púsluspil sem þeir hafa búið til. Ég hef ekki hugmynd um hversu lengi hvert spil er varðveitt í vefþjónum þjónustuaðila.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

On the powers of time

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni