Close

Svona gerum við

Námsefni

Microsoft Pivot

Netið veitir okkur aðgang að yfirþyrmandi magni gagna um alla mögulega og ekki síst ómögulega hluti. Á hinn bóginn er það varla fyrir venjulegt fólk að koma skikkan á þó ekki væri nema brot að þessum gögnum hvað þá skapa úr þeim gagnlegar upplýsingar. Þar kemur Microsoft Pivot til sögunnar.

Microsoft Pivot er nýjasta afurð sérfræðinganna á tilraunastofu Microsoft (Microsoft Live labs), en forritinu er ætlað að einfalda notendum að vinna með gögn með því að seta þau fram myndrænan hátt. Grundvallarhugtakið í Microsoft Pivot er Collection, eða safn. Safn getur t.a.m. samanstaðið af upplýsingum um kvikmyndir. Sýnishorn af slíku safni fylgir með þegar Pivot er sett upp og geta notendur reynt koma auga á tengingar, mynstur eða reglu í gögnunum með aðstoð forritsins.

Hver sem áhuga hefur getur sett saman safn til að vinna með í Pivot, en þau verða að vera á þar til gerðu sniði. Söfn geta verið einföld, tengd eða síbreytileg (e. dynamic) en hin síðastnefndu er víst hvað erfiðast að búa til. Microsoft hefur einfaldað vinnuna við safnagerð með því að smíða sérstaka viðbót við Excel. Hér er svo annað forrit sem á að einfalda smíði á Pivot söfnum. Ég á enn eftir að prufa að setja saman mitt eigið safn og finn vonandi tíma til þess í allra nánustu framtíð. Eitt er víst að Pivot er forrit sem ég mun kynna fyrir nemendum mínum fljótlega.

Microsoft Pivot má sækja endurgjaldslaust á vefnum getpivot.com.


Tengt efni

  1. Flosi Kristjánsson03-16-10

    Orðið sem kemur upp í hugann við að sjá þetta er gamalt og hippa-legt: Mindblowing!!

    Núna mundu krakkarnir kalla þetta Awesome!

    Ég gæti trúað því að Google eða Picasa hafi verið komið inn á þessa braut með því að greina allar digital andlitsmyndir á tilteknu skráasvæði og flokka þær þannig að öllum myndum af sömu manneskju er safnað saman. Það er ótrúlegt að sjá hve skilvirk sú greining er. Sannarelga Mindblowing !

Skráðu athugasemd