Google Public Data Explorer inniheldur enn sem komið er frekar takmarkað úrval gagna, en framsetningin er vissulega allrar athygli verð og sómir sér vel í kennslustofu. Gögnin sem um ræðir koma öll úr opnum gagnagrunnum eins og nafn þjónustunnar gefur til kynna. Koma þau m.a. frá frá Eurostat (hagstofa ESB), OECD Factbook og manntalsskrifstofunni bandarísku. Hér má sjá yfirlit yfir það efni sem hægt er að skoða.
Hægt er að varpa gögnum úr gagnakönnuðinum yfir á aðra vefi. Hér má t.d. sjá upplýsingar um meðallaun (í evrum) í Evrópu á tíu ára tímabili.
Hér má svo sjá upplýsingar um atvinnuleysi í Evrópu.
Ég hvet kennara til að kynna sér gagnakönnuð Google og í framhaldi af því er kjörið að skoða glænýjan vef Gapminder stofnunarinnar. Ég mæli einnig sérstaklega með frábærum fyrirlestri Rosling á TED 2006 ráðstefnunni.


