Notendaviðmótið
Notendaviðmótið í Camtasia 7 hefur fengið ágætis andlitslyftingu. Stóri verkefnalistinn vinstra meginn á skjánum er horfinn og einnig tækjastikan þar fyrir ofan. Ný tækjastika með stórum hnöppum hefur bæst við fyrir ofan tímalínuna. Með þessum breytingum fæst aukið pláss fyrir vinnusvæði sem er mjög til bóta.

Nýja notendaviðmótið boðar enga byltingu en breytingarnar eru klárlega til bóta og gera vinnu í Camtasia þjálli og gott ef ekki aðeins fljótlegri.
Safnið
Eitt af því sem löngum hefur truflað mig þegar ég vinn í Camtasia er hversu takmarkað það er þegar kemur að endurnýtingu efnis. Tökum sem dæmi myndir, titla eða tónlist sem ég vil nota aftur og aftur. Fram til þessa hefur eina leiðin verið að að vista slíkt efni í sérstakri möppu og flytja inn í Camtasia verkefni þegar á þarf að halda eða þá vista sérstakt verkefni í Camtasia sem inniheldur bara þessa hluti og bæta svo eiginlega myndskeiðinu við eftir á. Hvorug aðferðin er hentug. Með tilkomu safnsins (e. library) í Camtasia 7 er þess háttar tvíverknaður að baki. Í safnið get ég sankað að mér hljóðum, myndum, myndskeiðum eða titilglærum og notað í hvaða verkefni sem er. Safnið er líklega ein besta viðbótin við Camtasia sem komið hefur fram í lengri tíma.
Hér má sjá kynningarmyndskeið frá Techsmith um safnið í Camtasia 7
Innbyggð stilling fyrir háskerpumyndir á YouTube
Þegar ég komst upp á lag með að setja saman háskerpumyndskeið (HD) í Camtasia og vista á YouTube eða sambærilegum hýsingarþjónustum opnaðist ný vídd í notkun á ókeypis hýsingarþjónustum í kennslu. Forsendan er auðvitað sú að nú er hægt að vista efni á HD sniði á YouTube. Í raun er frekar einfalt að taka upp og vista efni í Camtasia á HD sniði en í útgáfu 7 er það enn auðveldara en áður. Vonandi verður það til þess að fleiri nýti þennan eiginlega og visti vandað kennsluefni á opnum hýsingarvefjum okkur öllum til gagns.
Sýnilegir flýtilyklar
Eitt af því sem ég vissi ekki að gæti komið sér vel fyrr en ég sá það í Camtasia 7 var möguleikinn á því að birta myndir af flýtilyklum með einni skipun í Camtasia ritlinum. Þessi eiginleiki á örugglega eftir að koma sér vel næst þegar ég set saman kennslu- eða kynningarefni þar sem ég notast við flýtilykla.
Hér má sjá kynningarmyndskeið frá Techsmith um flýtilykla á skjánum í Camtasia 7
Teikningar á skjánum
Ég hef oftar en tölu verður á komið saknað þess að geta ekki teiknað einfaldar leiðbeiningar, strik, örvar eða hringi til áherslu á skjáinn þegar ég er að setja saman kennsluefni í Camtasia. Sá kostur er reyndar ekki fyrir hendi í Camtasia 7, þ.e. eins og ég vil helst hafa hann, en engu að síður er hægt að setja inn örvar og nokkur tilbúin form.
Hér má sjá kynningarmyndskeið frá Techsmith um teikningar á skjánum í Camtasia 7
Endurbætt hljóðvinnsla
Camtasia er ekki hljóðvinnsluforrit en inniheldur þrátt fyrir það nokkur mikilvæg verkfæri til að sýsla með hljóð. Þannig er hægt að hækka eða lækka hljóðrásir í myndskeiðum, hreinsa suð og gera talað mál aðeins skýrara. Endurbæturnar á hljóðvinnslunni snúast öðru fremur um notendaviðmótið og eru ekki stórvægilegar en samt til bóta.
Hér má sjá kynningarmyndskeið frá Techsmith um hljóðvinnsluna í Camtasia 7
Niðurlag
Á heildina litið er hér á ferðinni ansi vel heppnuð uppfærsla með fjölmörgum tímabærum lagfæringum og nokkrum vel lukkuðum nýjungum. Ég er sérstaklega hrifinn af safninu en aðrir kostir, s.s. að geta sýnt flýtilykla á skjánum og birt einföld form eru líka vel til fundnir. Enn er þó svigrúm til endurbóta t.d. hvað varðar ritilinn þegar titilglærur eru unnar. Hann er ennþá allt of smár og takmarkaður.


