Close

Svona gerum við

Námsefni

Öskufall og upplýsingatækni

Viðfangsefni dagsins í tölvukennslunni hjá mér á starfsbraut var smíði forsíða í Microsoft Word. Ég byrjaði hins vegar tímann á því að kynna vefinn flightradar24 fyrir nemendum mínum, en þar er hægt að fá myndræna sýn á flugumferð í Evrópu.

Ástæðan var að sjálfsögðu sú að vegna öskufalls frá eldgosinu í Eyjafjallajökli þá liggur flug niðri á stórum svæðum á hinu evrópska flugumferðarsvæði. Þetta má glögglega sjá á flightradar. Flightradar er auk þess lifandi vefur og hægt að uppfæra upplýsingarnar á allt að 10 sek. fresti. Ímyndið ykkur bara möguleikana í kennslu og ekki bara þegar það gýs á íslandi.

flightradar

Ásamt því að fá greinargóða yfirsýn yfir flugumferð yfir Evrópu er hægt að kalla fram ítarlegar upplýsingar um hverja einustu flugvél sem birtist á kortinu. Þannig er hægt að sjá flugnúmer, hraða og hvert ferðinni er heitið. Á myndinni hér fyrir neðan má t.a.m. sjá flug FI520 á leið frá Íslandi til Frankfurt Am Main í Þýskalandi.

flightradar2



Tengt efni

  • Ekkert fannst

Skráðu athugasemd