Ning var hleypt af stokkunum árið 2005 og hefur löngum verið einn vinsælasti vettvangur einstaklinga og hópa til að stofna sjálfstæð tengslanet (e. social networks). Ning svipar mjög til tengslaneta á við Facebook og MySpace nema hvað notendur hafa meira frelsi til að skapa sjálfstæðan, afmarkaðan vettvang. Í boði var ókeypis aðgangur kostaður af auglýsingum eða …
Ning hefur ekki síst verið vinsælt meðal kennara um heim allan sem hafa notað frelsið og verkfærin sem það hefur í boði til að skapa fjölbreytt samfélög um nám, samskipti og samvinnu. Ég er meðlimur í nokkrum slíkum samfélögum. s.s.:
- Assistivetech
- Classroom 2.0
- College 2.0
- Edubloggerworld
- Games in School
- LearningTown
- TLWMSN
- Upplýsingatækni í miðlun og menntun
Hinn 15. apríl s.l. kom hins vegar tilkynning frá stjórnendum Ning að öllum ókeypis samfélögum á þeirra vegum yrði lokar. Eigendur hafa því um þrjá kosti að velja. Loka sjoppunni fyrir fullt og allt, flytja efnið sitt og byrja annarsstaðar eða greiða fyrir áframhaldandi aðgang að Ning. Þess má geta að þann 4. maí nk. ætlar Ning að birta upplýsinagr um framtíðarfyrirkomulag á þjónustunni, verð og annað.
Tilkynningin frá Ning þarf ekki að koma svo mikið á óvart. Sögur um fjárhagslega erfiðleika fyrirtækisins hafa verið á sveimi og þar sem stjórnendur Ning hafa tilkynnt um uppsögn 40% starfsmanna samhliða lokun á ókeypis þjónustu er ekki erfitt að geta sér til um ástæðuna.
Sumir hafa gengið svo langt að túlka aðgerðirnar hjá Ning sem upphafið að endalokum Freemium módelsins svokallaða. Það er alls ekki svo langsótt hugmynd og hver veit? Sjálfur tel ég svo ekki vera. Það munu alltaf vera til aðilar sem sjá hag sinn í því að veita takmarkaða grunnþjónustu ókeypis en krefjast greiðslu fyrir allt umfram það. Ég held auk þess þess háttar tekjumódel henti ágætlega á einstaka sviðum hvað sem segja má um núverandi erfiðleika Ning. Eins og réttilega segir í þessari grein þá virðist galdurinn felast í því að ná allt að því fullkomnu jafnvægi á milli þess sem þú gefur frá þér og þess sem þú ætlar notendum að greiða fyrir. Ókeypis þjónustan verður að hafa mikið aðdráttarafl en hún má alls ekki uppfylla þarfir allar þarfir viðskiptavinsins því þá er engin ástæða að uppfæra í greidda þjónustu. Í þessu ljósi má segja að ókeypis þjónustan hjá Ning hafi einfaldlega verið of góð til að endast.
Sólveig Jakobsdóttir kennari við HÍ sem stýrir Ning samfélagi um Upplýsingatækni í miðlun og menntun verður því, ásamt öðrum notendum að ókeypis þjónustunni, að gera upp hug sinn. Er Ning peninganna virði? Henni og öðrum sem standa í sömu sporum má benda nokkra valkosti. Facebook kemur strax upp í hugann en persónulega finnst mér það ekki ákjósanlegur valkostur fyrir menntasamfélög. Netverjar hafa verið duglegir að benda á önnur verkfæri (eða hér) fyrir Ning notendur og mætti s.s. íhuga þann kost líka. Svo mætti auðvitað fara allt aðra leið og setja upp samþættan vef í kringum blogg og wiki kerfi. Ég legg hinsvegar til að þið sem standið í þessum sporum skoði vandlega opna hugbúnaðinn BuddyPress. Buddypress byggir á hinu geysivinsæla vefkerfi WordPress nema hvað það hefur verið mótað sérstaklega til að þjóna hlutverki tengslanets.
p.s
Ning er ekki eina þjónustan þar sem ákveðið hefur verið að loka á ókeypis aðgang. Hið sama má segja um Visible Body, stórfenglegan vef sem lengi vel var ókeypis en er það ekki lengur því miður. Kynnið ykkur samt nemenda- og kennarakjörin þeirra því auðvitað er meira en sjálfsagt að greiða sanngjarnt verð fyrir góða þjónustu.


