Ég hef gert öll verkefnin aðgengileg á Issuu svæðinu mínu og geta kennarar eða aðrir sem áhuga hafa sótt þau þangað endurgjaldslaust og nýtt að vild. Einnig má sækja verkefnin með því að smella á myndirnar hér fyrir neðan.
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Í myndskeiðinu hér fyrir neðan má svo sjá hvernig ég notaði Math Resource Studio til þess að setja saman eitt verkefnið. Ég mæli með Math Resource Studio til þess að vinna stærðfræðiefni. Það er glettilega öflugt þegar maður hefur náð tökum á notendaviðmótinu. Hafi einhver áhuga á því að sækja prufuútgáfu af forritinu og spreyta sig á því að setja saman samskonar verkefni þér er hægt að sækja stóru klukkumyndina hér. Athugið að einnig er til einfaldari útgáfa af Math Resource Studio sem er ókeypis.
Allar athugasemdir og ábendingar varðandi verkefnin eru vel þegnar. Ein ástæða þess að geri efnið mitt aðgengilegt á netinu er að fá uppbyggilega gagnrýni sem ég get svo nýtt til þess að bæta verkin.








