Close

Svona gerum við

Námsefni

Hvað með skýið?

Hafin er innleiðing á Google Apps netlægu hugbúnaðarsvítunni við Grunnskóla Seltjarnarness. Stefnt er að því að nemendur jafnt sem kennarar flytji sig nánast alfarið yfir á skýið hvað tölvupóst, ritvinnslu, töflureiknir og framsetningarforrit varðar frá og með næsta hausti. Í kjölfarið verður samningum við Microsoft sagt upp.

Grunnskólarnir á Seltjarnarnesi eru ekki einir um að reyna að draga úr rekstrarkostnaði í upplýsingatækni með því að færa sig úr faðmi Microsoft og leita á önnur mið. Viðamesta tilraunin er vafalítið framkvæmd fyrir norðan land um þessar mundir, í Menntaskólanum og Verkmenntaskólanum á Akureyri. Þar hefur opinn hugbúnaður leyst Microsoft af hólmi. Open Office hugbúnaðarvöndulinn kemur þar í stað Office og Linux í leysir Windows af hólmi. Ekki veit ég til þess að grunnskólarnir á Seltjarnarnesi ætli sér að skipta yfir í annað stýrikerfi, en sú ákvörðun að taka í notkun netlægan hugbúnað er hins vegar allrar athygli verð.

Nokkur orð um Google Apps

Google Apps samanstendur af nokkrum samtengdum lausnum. Tölvupósti (gmail), ritvinnslu, töflureikni, framsetningarforriti, dagatali og umhverfi til vefsmíða (Google sites). Sérstök útgáfa af Google Apps stendur menntastofnunum til boða án endurgjalds og án auglýsinga. Það er því ekki erfitt að sjá hvert aðdráttaraflið er fyrir fjársveltar íslenskar menntastofnanir.

googleapps

Hitt er annað mál að netlægar lausnir standa fæstar hefðbundnum hugbúnaði á sporði enn sem komið er. Í það minnsta hvað eiginleika varðar. Notendaviðmót ritvinnslunnar í Google Apps er t.a.m. miklu mun fátæklegra en það sem Microsoft Word skartar og það verða því töluverð viðbrigði fyrir kennara sem vanist hefur Office 2007 svítunni að færa sig yfir í Google Apps. Vert er að geta þess að Microsoft ætlar sér einnig stóra hluti á netinu með netlægri útgáfu af Office pakkanum.

Eins og sjá má er töluverður munur á notendaviðmóti ritvinnslunnar í Google Docs og Microsoft Word

Eins og sjá má er töluverður munur á notendaviðmóti ritvinnslunnar í Google Docs og Microsoft Word

Það má vel færa ágæt rök fyrir því að einföld ritvinnsla eins og fyrirfinnst í Google Apps safninu henti ágætlega í námi á grunnskólastigi. Stór hluti eiginleika Office vöndulsins er lítt til þess fallinn að nýta í skólastarfi. Forritarar Google hafa þar að auki verið duglegir að uppfæra Google hugbúnaðinn og með hverri nýrri útgáfu færast forritin nær hefðbundnum samnefnurum sínum.

Í þessu sambandi verður einnig að taka með í reikninginn þá eiginleika Google Apps sem Microsoft á hvað erfiðast að keppa við, nefnilega samvinnukostina. Google Apps svítan er magnað samvinnuverkfæri og það hefur mikið vægi í nútíma skólastarfi. Gleymum því heldur ekki að Google Apps nýtist nemendum einnig utan skóla svo lengi sem til stðar er tölva og nettenging. Miðað við skýrslur hagstofunnar af tölvueign og netaðgangi íslenskra heimila ætti það ekki að vera stórt vandamál. Það er væntanlega kostur á þessum síðustu og verstu tímum.

Opinn hugbúnaður eða netlægar lausnir?

Ég velti því fyrir mér hvor leiðin henti betur skólum þar sem ákveðið hefur verið að segja upp samningi við Microsoft, opinn hugbúnaður eða skýið? Ég er persónulega sannfærður um að framtíðin liggi í skýinu en svo má velta því fyrir sér hvar og hvenær netlægur hugbúnaður eins og Google Apps kemur að gagni. Það væri fróðlegt að heyra af fleiri skólum sem hafa tekið Google Apps í notkun hér á landi.



Tengt efni

Skráðu athugasemd