Close

Svona gerum við

Námsefni

Námskeið á næstunni

Ég vek athygli á tveimur Joomla námskeiðum sem ég kenni á næstunni. Annars vegar er um að ræða námskeið í efnisvinnslu á vef og hins vegar framhaldsnámskeið í Joomla vefumsjónarkerfinu. Námskeiðin eru sérstaklega ætluð félagsmönnum 3F.

Framhaldsnámskeið í Joomla

26. maí
Fyrri hluti námskeiðsins verður haldinn í Verzlunarskóla Íslands og hefst það kl. 15:00 og lýkur um 17:00. Seinni hluti verður síðan í fjarnámi á kennsluvef. Áhugasamir sem ekki geta verið á staðnum geta tekið þátt með aðstoð eMission, en þá þarf að taka það fram í umsókninni.

Námskeiðsgjald fyrir félagsmenn 3f er kr. 6.000. Rétt er að geta þess að allir áhugasamir geta gerst félagsmenn í 3f og félagsgjald er ekkert sem stendur.

Hér má skrá sig á námskeiðið

Efnisvinnsla á vef

1. og 8. júní kl. 9:00 – 13:30
Markmið námskeiðsins er að gera upplýsingatæknikennara færari í hvers konar efnisvinnslu á vef, s.s. vinnslu með texta, myndir, hljóð og margmiðlunar efni.

Skráning: Heimasíða Endurmenntunar Háskóla Íslands



Tengt efni

Skráðu athugasemd