Aðgangur að opinberum og öðrum opnum og ókeypis gögnum er öllum opinn án endurgjalds á vef Datamarket en þó þarf að stofna aðgang til að geta framkvæmt sumar aðgerðir, s.s. fella gröf inn í aðra vefi. Aðgang að gögnum einkarekinna gagnaveitna s.s. markaðsrannsóknarfyrirtækja, kauphalla og greiningaraðila er hægt að kaupa gegn áskriftargjaldi. Hér má sjá sýnishorn af birtingarformi gagna á Datamarket.
Urbanization in Iceland from 1901 / Búseta á Íslandi frá 1901 from hjalli on Vimeo.
Myndræn framsetning á íslenskum efnahag, samfélagi, náttúru og iðnaði er dýrmæt auðlind í öllu skólastarfi og ég efast ekki um að skapandi kennarar muni finna ótal leiðir til þess að nýta þessi gögn á gefandi hátt. Hér fyrir neðan má t.a.m. sjá þróun á söluverðmæti hljóðrita á tímabilinu 1991-2008. Þetta graf mæti hæglega nota til þess að skapa upplýsta umræðu um áhrif Netsins á tónlistariðnaðinn hér á landi og erlendis.
Umfang gagna sem aðgengilegt er á Datamerket er nú þegar gríðarlegt og þar má til að mynda nálgast öll gögn úr rannsóknarskýrslunni umræddu.



Þakka hlý orð í okkar garð. Ég vona svo sannarlega að sem flestir kennarar taki þig á orðinu. Við erum meira en tilbúin að hjálpa áhugasömum við að kynna sér (og öðrum) lausnina og möguleika hennar.
Sömuleiðis: Við kunnum virkilega að meta það að fá sendar hugmyndir, ábendingar og tilkynningar um villur og yfirsjónir.
Þannig að ekki hika við að hafa samband ef eitthvað er.