Microsoft Mouse Mischief tengist PowerPoint 2007 og 2010 og gerir kennurum (og auðvitað öllum öðrum notendum) kleift að fella inn í einstaka glærur ákveðna gagnvirkar þætti, s.s. spurningar, einfaldar kannanir og stórsniðugt teikniverkfæri. Kennari og nemendur geta svo notað þessi verkfæri og allt annað sem Powerpoint hefur uppá að bjóða með allt að 25 samtengdum músum eins og áður segir. Þetta hljómar kannski dálítið undarlega, en sjón er sögu ríkari.
Ég prufaði að setja upp þennan hugbúnað hjá mér og hafði tvær mýs tengdar við tölvuna. Annars vegar mús sem ég tengdi með venjulegri USB snúru og hins vegar þráðlausa mús sem ég nota að jafnaði. Ég ræsti síðan Powerpoint og smellti á nýjan flipa þar sem á stóð Multiple Mouse og veitir aðgang að sérstökum verkfærum sem tengjast Microsoft Mouse Mischief. Það tók mig svo ekki nema nokkrar mínútur að átta mig á því hvernig þetta virkar og búa til einfalt verkefni. Að því loknu sótti ég tilbúið verkefni á vef Microsoft til að fá frekari hugmyndir og sjá hvað hægt er að gera með þessari viðbót. Ég sé þann galla helstan á forritinu að svo virðist sem ég geti ekki breytt skilaboðum frá kerfinu. Ég vil endilega að upplýsingar sem birtast á skjánum um rétt svör og hver svaraði spurningu fyrst rétt séu á íslensku. Við fyrstu sýni virðist það ekki mögulegt, enn sem komið er allavega.
Microsoft Mouse Mischief er hannað til að nota í kennslu og ég er viss um að það á eftir að koma að góðum notum hér á landi sem annarsstaðar. Ég er samt ekkert endilega viss um að ég vilji tengja 25 mýs við tölvuna í kennslustofunni hjá mér. Það gæti orðið ansi þröngt á þingi á skjánum og ruglingslegt (ekki það að ég væri alveg til í að prófa það). En í smærri hópum er ég sannfærður um að þessi nýjung geti opnað nýja vídd í notkun á Powerpoint í kennslu. Ekki veitir af.
Ég er ekki síst spenntur fyrir möguleikum þessarar stórsniðugu viðbótar í leikskólum eða sérkennslu. Í sérkennslu fatlaðra sé ég fyrir mér allskonar spennandi möguleika sem ég get ekki beðið að prufa með nemendum mínum um leið og kennsla hefst á ný næsta haust.
Microsoft Mouse Mischief má sækja endurgjaldslaust á vef Microsoft þar sem einnig eru aðgengileg myndskeið sem sýna forritið í notkun og sýnishorn af kennsluefni.


