Tryggvi Thayer ritar áhugaverðan pistil um atvinnulíf og skólamál. [Translate]
Guðjón Ólafsson, vefstjóri og framhaldsskólakennari við Verkmenntaskólann á Akureyri hefur verið ötull að setja saman leiðbeiningar fyrir margvíslegan hugbúnað sem nýtist í skólastarfi. Hann hefur m.a. skrifað 32 stuttar, markvissar leiðbeiningar undir heitinu smávegis um Moodle. [Translate]
Fræðslufundur um ADHD og tölvufíkn verður haldinn á vegum ADHD samtakanna miðvikudaginn 30. júní kl. 20 í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Frekari upplýsingar á vef ADHD samtakanna. [Translate]
Ég sótti um styrk í Sprotasjóð og var nokkuð vongóður um jákvæðar viðtökur. Ætlaði mér það metnaðarfulla verkefni að stofna vettvang um opin námsgögn með áherslu á sérkennslu í starfsbrautum á framhaldsskólastigi. Hlaut því miður ekki náð fyrir augum dómnefndar í ár (frekar en síðast). [Translate]
Ég hef alls ekki verið nógu duglegur að nýta mér Google Wave samskiptatólið. Ég segi þetta vegna þess að eftir því sem ég kynni mér verkfærið betur verð ég stöðugt sannfærðari um ágæti þess og notagildi. Google Wave er einstakt að því leyti að þjónustan samþættir svo marga ólíkar kosti svo úr verður einn öflugasti ...
Athugasemdir