Close

Svona gerum við

Námsefni

Svona má nota Google Wave í kennslu


Ég hef alls ekki verið nógu duglegur að nýta mér Google Wave samskiptatólið. Ég segi þetta vegna þess að eftir því sem ég kynni mér verkfærið betur verð ég stöðugt sannfærðari um ágæti þess og notagildi. Google Wave er einstakt að því leyti að þjónustan samþættir svo marga ólíkar kosti svo úr verður einn öflugasti samskiptamáti sem völ er á Netinu.


Google Wave er netlægt verkfæri líkt og tölvupóstur eða umræðuvefur sem hægt er að tengjast hvar og hvenær sem er svo lengi sem netsamband er fyrir hendi. En svo má líka fella einstaka samræður í Google Wave inn í hvaða vefsíðu (eða námsstjórnunarkerfi) sem er og gefa öllum sem áhuga aðgang að rauntímasamskiptum. Hér má sjá hvernig það virkar.



Stóri ókosturinn við að opna Wave líkt og hér er gert er sá að þá geta óboðnir tekið þátt í umræðunum. Að vísu þurfa viðkomandi að finna umræðuna og það er nokkuð langsótt að ætla að mikil truflun verði af. Kostirnir við Google Wave eru hins vegar fjölmargir og t.a.m. er nú þegar hægt að sækja allskonar viðbætur (e. gadgets) sem margar hverjar geta nýst vel í námi og kennslu.

Enn sem komið er hefur Google Wave ekki náð þeirri útbreiðslu sem lausnin á skilið. Líklegast er hún of frábrugðin tölvupósti til að geta komið fyrirhafnarlaust í stað hans. Google Wave er samskiptamáti sem fólk þarf að læra að nota og það skemmtilega er að hann venst glettilega vel.



Tengt efni

Skráðu athugasemd