Close

Svona gerum við

Námsefni

Opin námsgögn

Ég sótti um styrk í Sprotasjóð og var nokkuð vongóður um jákvæðar viðtökur. Ætlaði mér það metnaðarfulla verkefni að stofna vettvang um opin námsgögn með áherslu á sérkennslu í starfsbrautum á framhaldsskólastigi. Hlaut því miður ekki náð fyrir augum dómnefndar í ár (frekar en síðast).
Úthlutunin var samt súrsæt hvað mig varðar því verkefni sem ég kem að hlaut vilyrði fyrir styrk.

Svo ég lýsi verkefninu aðeins nánar þá hafa starfsbrautir framhaldsskólanna búið við mismikið, sívarandi fjársvelti allt frá því til þeirra var stofnað. Það er auðvitað gömul saga og ný að peningar eru að skornum skammti innan skólakerfisins. Ekki síst nú á dögum niðurskurðar og samdráttar á öllum sviðum. Á sama tíma er starfsbrautunum gert að koma til móts við afar ólíkan nemendahóp á einstaklingsmiðaðan hátt. Það þýðir m.a. að afla þarf eða skapa námsefni við hæfi hvers og eins, sem getur reynst þrautinni þyngri.

Staðreyndin er nefnilega sú að útgefið efni, hversu vandað sem það kann að vera, hentar einungis litlum hluta nemenda þegar þarfir og geta er svo ólík eins og um er að ræða innan starfsbrautanna. Þetta þekkja sérkennarar vel. Margt hefðbundið, útgefið efni hentar einnig illa í sérkennslu því í fæstum tilfellum er hægt að aðlaga það að einstaka nemendum. Í fyrsta lagi er það höfundarvarið og í öðru lagi þá er það sjaldnast aðgengilegt á sniði sem býður upp á breytingar. Námsefnisgerð er því oft á tíðum eina leiðin fyrir kennara á starfsbraut að koma til móts við nemendur sína á þann hátt sem honum ber að gera.

Opin námsgögn (e. open educational resources) eru öllum aðgengileg og höfundar hafa gefið notendum frelsi til að ráðstafa á ákveðin hátt með þar til gerðum höfundarleyfum (s.s. Creative Commons). Opin námsgögn eiga fjölmargt sammerkt með frjálsum og opnum hugbúnaði, en um hann hefur verið samin sérstök stefna hér á landi.

Mér þótti því kjörið að sameina kennara á starfsbrautum á opnum vettvangi þar sem við gætum deilt með okkur námsefni öllum til hagsbóta. Slíkur vettvangur gæti hæglega orðið fyrirmynd að öllu umfangsmeira verkefni sem næði til allra kennara á öllum skólastigum. Slík samfélög eru til og ég veit að það er vilji innan menntamálaráðuneytisins að skapa opinn og lifandi vettvang um íslenskt námsefni. Ég að það megi vel hugsa stórt, en auðvitað taka eitt skref í einu. Aðstaða sérkennara í framhaldsskólunum eins og ég lýsti henni hér að ofan gerir starfsbrautirnar að góðum upphafspunkti og ég er viss um að þetta hefði orðið gott þróunarverkefni að læra af.

Umræða um opin námsgögn hefur verið mjög lítil hér á landi sem er miður. Opin námsgögn eru vannýtt auðlind sem okkur ber að hlúa að og styrkja með öllum ráðum. Okkur ber líka að uppfræða kennara um hin ólíku höfundarleyfi og hvetja þá til að koma efni sem þeir kunna að eiga á framfæri undir opnum höfundarleyfum. Ekki síst nú á tímum niðurskurðar og aðhalds. Hagnýting opinna námsgagna felur í sér skapandi samvinnu kennara sem er nákvæmlega það sem við þurfum á að halda núna. Netlægur vettvangur um opin námsgögn er þar að auki samfélag kennara sem geta skipst á skoðunum auk námsefnis. Hafi einhver áhyggjur af gæði námsefnisins þá ætlaði ég mér að tryggja það með jafningjamati. Einnig var hugmyndin að gefa mánaðarlega út rafrænt fréttabréf með yfirliti yfir nýtt og áhugavert námsefni, ábendingum um spennandi umræður á vefnum, umfjöllun um hugbúnað, leiðbeiningum eða jafnvel yfirliti yfir væntanleg námskeið.

Eins og sjá má er ég sannfærður um ágæti opinna námsgagna í íslensku skólakerfi. Verkefnið féll hins vegar illa að áherslusviðum sjóðsins í ár og eins og áður segir þá hlaut hugmyndin ekki brautargengi hjá Sprotasjóði. Gengur bara betur næst. Ég ætla mér engu að síður að halda henni til haga og leita allra leiða til að raungera umræddan vettvang um opin námsgögn með eða án opinbers stuðnings. Að lokum legg ég til að hagnýting upplýsingatækni til að bæta gæði náms og kennslu verði eitt af forgangssviðum Sprotasjóðs við næstu úthlutum.

Hér má sjá yfirlit yfir úthlutun úr Sprotasjóði fyrir skólaárið 2010-2011.



Tengt efni

Skráðu athugasemd