Close

Svona gerum við

Námsefni

Smávegis um Moodle

Guðjón Ólafsson, vefstjóri og framhaldsskólakennari við Verkmenntaskólann á Akureyri hefur verið ötull að setja saman leiðbeiningar fyrir margvíslegan hugbúnað sem nýtist í skólastarfi. Hann hefur m.a. skrifað 32 stuttar, markvissar leiðbeiningar undir heitinu smávegis um Moodle.

Smávegis pistlar Guðjóns eru öllum aðgengilegir á vef Verkmenntaskólans á Akureyri og er það mjög til eftirbreytni að birta svo gagnlegt efni á opnum vettvangi. Ég er einnig mjög hrifinn af þessari nálgun í símenntun kennara, þ.e. að notast við hnitmiðaðar leiðbeiningar sem hægt er að senda reglulega til kennara í tölvupósti.

Á nýlegri málstofu Í HÍ um Moodle námsstjórnunarkerfið ræddi ég m.a. um nauðsyn öflugrar kynningar og símenntunar í tengslum við væntanlega útgáfu á Moodle 2. Um er að ræða viðamestu breytingar á kerfinu frá upphafi og ljóst að flækjustigið mun aukast eitthvað þrátt fyrir að Moodle verði eftir sem áður eitt aðgengilegasta kerfi sinnar tegundar. Moodle er mest notaða námsstjórnunarkerfið í skólum hér á landi og því brýnt að fara að huga að þessar viðamiklu uppfærslu.

Leiðbeiningar eins og Guðjón hefur sett saman eru mikilvæg leið til þess að tryggja snurðulausa uppfærslu. Sjálfur hef ég sett saman stutt myndskeið og birt á YouTube um einstaka þætti í Moodle og hef í hyggju að gera slíkt hið sama fyrir Moodle 2.


Tengt efni

Skráðu athugasemd