Close

Svona gerum við

Námsefni

En hvað ef maður á ekki Dreamweaver?

Dreamweaver er að öllum líkindum besti vefsmiðurinn sem völ er á. Reyndar gríp ég æ sjaldnar til slíkra verkfæra en stundum, t.d. þegar setja þarf saman flóknar töflur, þá er gott að vita af honum innan seilingar. En Dreamweaver er allt of dýrkeyptur hugbúnaður þegar einungis er þörf á slíku verkfæri við sérstök tækifæri.

Kompozer vefsmiðurinn er opinn hugbúnaður sem inniheldur flesta þá virkni sem ég sækist eftir þá sjaldan ég opna Dreamweaver. Hann er skilgetið afkvæmi Nvu sem þótti nokkuð frambærilegur hugbúnaður lengi vel, þ.e. allt þar til Linspire Inc hætti þróun á honum árið 2006. Kompozer byggir á Gecko vélinni sem grundvallar Mozilla Firefox vefskoðarann og notendaviðmótið er ekki ósvipað og Dreamweaver. Eldri útgáfum allavega.

Kompozer skjámynd

Kompozer er vitaskuld langt því frá sömu eiginleikum gæddur og hinn dýrkeypti Dreamweaver frá Adobe. Vitaskuld segi ég vegna þess að Adobe hefur yfir að ráða her vel launaðra forritara sem leggja að sjálfsögðu metnað sinn og fagmennsku í að þróa þennan besta vefsmið sem völ er á. Sem er að sjálfsögðu hið besta mál og ekkert út á það að setja.

Hitt er annað mál að Kompozer hentar afskaplega vel til þeirra smáverka sem ég áður leysti með Dreamweaver. Ég mæli því hiklaust með Komposer þrátt fyrir að forritið sé enn sem komið er einungis í útgáfu 0.8. Það getur einungis batnað.

Kompozer er til fyrir bæði Linux og Windows stýrikerfin á hinum ýmsu tungumálum (ekki íslensku því miður). Það er kjörið í skólastarfi.


Tengt efni

Skráðu athugasemd