Síðustu mánuði hef ég sankað að mér nokkrum áhugaverðum skrifum sem nú er tímabært að fara að glugga aðeins nánar í. Meðal efnis er Horizon 2010 skýrslan og drög að nýrri áætlun um notkun á upplýsingatækni í bandaríska skólakerfinu.
Hér er brot af því besta.
Hér er brot af því besta.
- Assessing the Effects of ICT in Education
Þrátt fyrir umtalsverða fjárfestingu menntakerfisins í upplýsingatækni allt frá níunda áratug síðustu aldar skortir enn á alþjóðlega mælikvarða um innleiðingu og notkun á tækni í námi og kennslu. Þessari bók sem gefin er út af OECD og hægt er að sækja endurgjaldslaust er ætlað að bæta þar úr. - Women on the Web: How Women are Shaping the Internet
Samkvæmt þessari rannsókn comScore eru u.þ.b. 46% netverja konur og er netnotkun þeirra er mjög ólík netnotkun karlmanna. Hægt er að sækja hvítbókina endurgjaldslaust á vef comScore. - Horizon 2010
Ég renni alltaf yfir hinar árlegu Horizon skýrslur þar sem fjallað er um tækninýjungar í námi og kennslu og þetta ár verður engin undantekning. - Innovation Through State Leadership
Ég kem örugglega til með að lesa nokkuð vel yfir þessa ítarlegu skýrslu frá SETDA (The State Educational Technology Directors Association). Hún á auðvitað fyrst og fremst við Bandaríkin en mér sýnist þarna margt frólegt sem læra mætti af. - National Education Technology Plan
Þann 5. mars sl. komu út drög að áætlun þeirra bandaríkjamanna um tækninotkun í skólakerfinu. Ég hef lengi ætlað að renna yfir þetta plagg og hef vonandi tíma til þess á næstunni. - Educators, Technology and 21st Century Skills: Dispelling Five Myths
Áhugaverð könnun sem leiðir í ljós að aukin notkun grunnskólakennara á upplýsingatækni hefur jákvæð áhrif á nám. Örugglega gagnlegt að renna yfir.
Það væri svo gaman að vita hvort einhver hafi rekist á áhugavert lesefni nýlega sem tengist upplýsingatækni í skólastarfi.
Höfundur ljósmyndar: Dhammza


