Virtual Piano er vandað og skemmtilegt sýndarhljóðfæri á vefnum sem ég er handviss um að komið getur að gagni í skólastarfi.
Sýndarpíanóið hljómar mjög eðlilega og hægt er að nota bæði mús og lyklaborð til þess að leika á það. Einfalt er að kalla fram nótur til að spila eftir. Reyndar ekki hefðbundin nótnablöð þar sem þau koma að takmörkuðu gagni þegar leikið er með lyklaborðinu. Ég prufaði að leika nokkur lög eftir nótum sem fylgja forritinu og gekk það bara ágætlega. Ég komst t.d. að því að svona sýndarhljóðfæri er ágætis æfing í vélritun, þ.e. þegar leikið er eftir nótum.

Það væri gaman að heyra frá kennurum sem láta reyna á þennan hugbúnað í skólastarfi. Einnig er ég forvitinn að heyra um fleiri sýndarhljóðfæri á Netinu.

Fyrirspurn.
Ég er svona í eldri kantinum af tölvutotendum. En ég hef mikið verið að velta því fyrir mér hvort ég geti fundið hljómborð á tölvunni minni (makka) til að æfa rímnastemmur. Bara til að pikka nóturnar því ég er búin að gefa burt píanóið til barnabarnanna.