Uffizi safnið í Flórens er eitt elsta og frægasta safn í heimi. Það er til húsa í Uffizi höllinni sem var byggð á rúmlega tuttugu ára tímabili frá 1560 – 1581 upphaflega í þeim tilgangi að hýsa dómarahöll Medici-ríkisins (orðið ufficio þýðir skrifstofur).
Fljótlega var þó efri hæðin gerð að einkalistasafni Francesco I af Medici. Uffizi var formlega opnað gestum árið 1765. Mikill fjöldi heimsækir safnið árlega og þar geta myndast langar biðraðir enda hýsir safnir margar af helstu gersemum verstrænnar listasögu, s.s. Fæðingu Venusar eftir Botticelli, Boðun Maríu og Síðasta kvöldmáltíðin eftir Leonardo da Vinci, Bacco eftir Caravaggio og svo mætti lengi, lengi telja.
Yffizi listasafnið í Flórens
Eins og gefur að skilja er það ekki á allra færi að skreppa suður til Ítalíu að sækja Uffizi heim en fjölmörg listaverkin sem þar eru varðveitt má hins vegar sjá og lesa um víðsvegar á Netinu. Forvitnilegasta framsetningin er jafnframt sú nýjasta, en nú gefst netverjum einstakt tækifæri til að upplifa brotabrot af safnkosti Uffizi í ótrúlegri upplausn. Opnað hefur verið fyrir ókeypis aðgang á Netinu að 11 verkum í Uffizi safninu. Hvert verk er í allt að 25 billjón pixla upplausn sem er um 3000 sinnum hærri upplausn en á venjulegri stafrænni ljósmynd. Því miður verður einungis hægt að sjá verkin endurgjaldslaust til 29. janúar 2011 samkvæmt fréttatilkynningu. Það er því ekki seinna að vænta en heimsækja Haltadefinizione verkefnið og berja dýrgripina augum. Svo er bara að vona að Ítalirnir sjái að sér og loki ekki á listræna Netverja eftir 29. janúar á næsta ári.
Höfundur ljósmyndar: cfwee


