Close

Svona gerum við

Námsefni

Líkamsvafri Google

Enn og aftur opinberar Google verkfæri sem er eins og sniðið að námi og kennslu. Í þetta skipti er um að ræða sérstaka vefþjónustu sem gerir notendum kleift að vafra um undraveröld mannslíkamans í þrívídd.

Líkamsvafri Google (sem enn er á þróunarstigi) byggir á WebGL tækninni svokölluðu sem er hluti af HTML 5 ívafsmálinu og innleiðir þrívíddarstuðning í vefskoðara án sérhæfðra viðbóta. WebGL er nú þegar innbyggt í þróunarútgáfur (e. beta) flestra stærri vefskoðara, s.s. Firefox 4, Safari og Google Chrome. Til þess að nota líkamsvafrann verður því að setja upp einn slíkan. Ég mæli að sjálfsögðu með Google Chrome, en betaútgáfu af honum má sækja hér.

Líkamsvafri Google er lagskiptur sem gerir það að verkum að hægt er að afmarka notendaviðmótið við ákveðinn hluta líkamans. Þannig má beina sjónum sérstaklega að beinagrindinni eða hjarta og æðakerfi svo einfalt dæmi sé tekið. Lagskiptingin er eftirfarandi:

  • Húðin
  • Vöðvar
  • Bein
  • Öndunar og meltingarfærin
  • Hjarta og æðakerfið
  • Heilinn

Auk þess að rannsaka manslíkamann frá öllum hugsanlegum sjónarhornum er einfalt að leita eftir einstaka líkamshlutum og jafnvel senda í tölvupósti (eða birta á vef) vefslóðir sem vísa beint á ákveðna líkamshluta. Hér er t.a.m. slóð að hjartanu. Hægt er að tvísmella á líkamshluta til að afmarka hann og svo er hægt að birta nöfn líkamshlutanna með því annað hvort að smella á líkamslhluta eða stilla vafrann þannig að hann birti alltaf nöfn allra líkamshluta.

Það getur tekið dálitla stund að hlaða líkamanum í vafrann fyrst þegar hann er opnaður, en að því loknu er vafrinn mjög hraðvirkur. Notendaviðmótið er auk þess einfalt og aðgengilegt.

Líkamsvafri Google svipar mjög til Visible Body hugbúnaðarins sem eitt sinn stóð öllum til boða endurgjaldslaust en er nú seldur aðgangur að. Ég á ekki von á öðru en að líkamsvafri Google verði ókeypis um ókomna tíð og hvet kennara að kynna sér herlegheitin. Þið verðið ekki fyrir vonbrigðum.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

  1. Vikan á netinu – Arnþór Snær01-10-11