Close

Svona gerum við

Námsefni

BETT 2011

Ég heimsótti BETT 2011 sem haldin var í London 11. – 14. janúar og varð ekki fyrir vonbrigðum. Yfir 600 sýnendur mættu til leiks í ár og úrvalið af vöru og þjónustu var engu líkt.

Það er hægara sagt en gert að rannsaka til hlítar allt það sem fyrir augun ber á svona fjölbreyttri sýningu, en hér er nokkuð að því sem mér þótti áhugavert.

Crick Software

Crick Software

Ég heimsæki alltaf Crick Software básinn enda mikill áhugamaður um Clicker hugbúnaðinn frá fyrirtækinu. Í ár var ég eiginlega að vonast eftir að sjá nýja útgáfu af Clicker, sem er löngu tímabær. Ekkert bólar hins vegar á henni. Þess í stað leggur Cricksoft áherslu á að framleiða og kynna námsefni sem keyrir í Clicker.

Proloquo2Go

Proloquo2Go

Proloquo2Go samskiptaforritið sem á iPhone, iPod touch og iPad, vakti verðskuldaða athygli á BETT 2011 og vann meira að segja til verðlauna. Proloquo2Go er mjög áhugaverður hugbúnaður sem við á Starfsbraut FB erum að prufa með nemendum um þessar mundir.

Microsoft

Microsoft

Microsoft var með stóran bás að venju og mikið af starfsfólki. Þar á bæ var m.a. lögð áhersla á að kynna ókeypis hugbúnað eins og t.a.m. Flashcards, Mouse mischief, áhugaverða stærðfræðiviðbót við Word og OneNone og Community Clips. Ég er persónulega mjög hrifin af Mouse mischief, en Flashcards er frekar takmarkað og lítt spennandi. Ég er að taka saman sérstakan pistil um Microsoft á BETT 2011 og mun birta hann síðar

Microsoft kynnti einnig nýjan verðstrúktúr fyrir skóla sem ég veit ekki hvort mun einnig ná til okkar á Íslandi.

Hue animation studio

Hue animation Studio

Hue Animation Studio er stórsniðugur og ódýr pakki sem inniheldur allt sem þarf til að gera skemmtilegar leirkallamyndir (e. claymation). Hreyfimyndagerð er virkilega áhugavert og skapandi viðfangsefni í skólastarfi. Kennarar sem vilja kynna sér stafræna sögugerð betur geta t.a.m. skoðað vefinn hennar Salvarar Gissurardóttur þar sem sérstaklega er fjallað um leirkallamyndir.

Stærðfræðiefni frá JellyJames

Stærðfræðiefni frá JellyJames

Ég var nokkuð spenntur fyrir Multi-Step Maths, nýju stærðfræðiefni frá útgefanda sem nefnist JellyJames. Efnið er algjörlega netlægt og virðist henta mjög vel í grunnskólum. Það sem vakti sérstakan áhuga minn var að svo virðist sem miklar líkur séu á því að efnið verði þýtt yfir á íslensku. Ég á eftir að fá það staðfest en það væri mjög skemmtileg þróun.

Humanware

HumanWare myReader

Það kom á óvart að sjá þessa mögnuðu lesvél lesa íslenskan texta á BETT 2011. Vélin virkar þannig að textinn er skannaður, birtur á skjá og lesin upphátt með aðstoð talgervils. Svona tækni gerir texta aðgengilegan fyrir sjónskerta og blinda, en hún er dýrkeypt mjög.

Eins og gefur að skilja er ofangreint einungis brot af öllu því sem sjá mátti á sýningunni og margt annað sem ég gæti fjallað um og á vonandi eftir að gera.

Ég vil að lokum vekja athygli á BETT kvöldi 3F sem haldið verður miðvikudagskvöldið 26. janúar nk. í Verzlunarskóla Íslands kl. 19:30. Þar gefst kjörið tækifæri til að koma saman og ræða um upplifun okkar af sýningunni.


Tengt efni

Skráðu athugasemd