3f, félag um upplýsingatækni og menntun, heldur hina árlegu ráðstefnu sína nú í samstarfi við Keili – Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, 11. mars nk. kl. 13:00-17:00 á Ásbrú. Ráðstefnunni var frestað í október sl. vegna dræmrar þátttöku en nú hefur ný dagsetning verið ákveðin.
Megin viðfangsefni ráðstefnunnar verður upplýsingatækni nútímans og hvernig má hagnýta hana í námi og kennslu. Dagskrá ráðstefnunar er fjölbreytt og ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi. Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna hér.
| 12:00 |
Rútuferð frá BSÍ |
| 13:00 |
Setning: Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar |
| 13:10 |
Fyrirlestur: Framtíðin er núna!
S. Fjalar Jónsson, kennari í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti |
| 14:00 |
Kaffihlé og kynningar verða á göngum og í stofum |
| 14:30 |
Innlegg og umræður – skipt eftir þemum:
Lausnir nú og í framtíðinni í UT
- Ómar Örn Magnússon frá Tækniskólanum og Jóhann Áki frá EJS LiveEdu þjónustan frá Microsoft. Ókeypis tölvupóstur, gagnahýsing og forrit.
- Salvör Gissurardóttir, kennari við HÍ Wikipedia og Wikibooks í skólastarfi
- Páll Guðbrandsson frá lestu.is Um raf- og hljóðbækur
- Moodle 2.0 Moodle er líklega mest notaða námsstjórnunarkerfið hér á landi og nýtt allt í senn á grunn- framhalds- og háskólastigi. Moodle notendur hafa alltaf haft eitthvað samráð sín á mill en skort hefur á miðlægan samráðs og samstarfsvettvang.
Raungreinar og upplýsingatækni
- Rúnar S. Þorvaldsson frá A4 kennari við MS og fyrrum formaður Félags raungreinakennara og Óskar Sigurðsson hjá A4. Þeir kynna Pasco tæki fyrir raungreina- og upplýsingatæknikennslu og fleiri forrit.
- Hlíf Böðvarsdóttir frá Keili Kynnir Livescribe, gagnvirkan penna sem er mikið notaður í stærðfræðikennslu
- Svava Pétursdóttir, doktorsnemi Svava ætlar að fara yfir stöðuna í dag varðandi notkun upplýsingatækni við náttúrufræðikennslu.Þær upplýsingar eru fengnar úr rannsókn hennar sem bæði fólst í spurningalista og viðtölum við kennara. Enn fremur verður farið yfir hverjir séu kostir og möguleikar upplýsingatækni við náttúrufræðikennslu, hvaða námsgögn eru til og hvaða áhrif þau geti haft á nám og kennslu.
- Agla Snorradóttir frá Grunnskóla BláskógabyggðarÁtthagafræði Bláskógabyggðar Agla mun fjalla um vefinn Átthagafræði í Bláskógabyggð sem var verkefni hennar til Meistaragráðu í HÍ. Verkefnið er hugsað, frá upphafi, til þess að koma á kennslu og notkun í upplýsingatækni og miðlun í grunnskóla, einkum í Grunnskóla Bláskógabyggðar. Auðvelt á að vera að yfirfæra verkefnið og nýta það breytt fyrir aðra grunnskóla eða sveitarfélög. Verkefnið byggir einnig á hugmyndum um fullorðinsfræðslu og hvaða leiðir eru færar til að hvetja kennara til að efla færni sína í upplýsingatækni og innleiða hana í grunnskólastarfið.
- Ellert Ólafsson, Stærðfræði í takt við tímann.Ellert kynnir kennslubók í stærðfræði sem byggir á kennslu með notkun tölvuforrita. Bókin er ætluð framhaldsskólanemum en með henni skal nota stærðfræðiforritið Maple. Ellert segir tölvuvæðingu stærðfræðikennslu vera byltingu sem muni valda miklum breytingum á næstu árum
Tungumál, samfélagsfræði, landafræði, samþætting námsgreina og UT
- Björgvin Ívar Guðbrandsson kennari í Langholtsskóla Segir frá því hvernig kennarar í Langholtsskóla samþætta upplýsingatækni og aðrar námsgreinar. Björgvin hefur verið þátttakandi í þróunarverkefninu Skapandi skólastarf í Langholtsskóla
- Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir frá Tungumálatorgi Kynnir nýtt Tungumálatorg. Tungumálatorgið er vettvangur á neti, tengdur námi og kennslu tungumála og fjölmenningarlegu skólastarfi. Það er vettvangur allra skóla- og fræðslustofnana og hefur því þýðingu fyrir fjölmenna hópa tungumálakennara, skólastjórnenda,foreldra og nemenda.
- Elín Jóna Traustadóttir, Gyða Björk Björnsdóttir og Halla Sigríður Bjarnadóttir frá Flúðaskóla Samþætting náttúrufræði og UT. Fjallað verður um bloggsíður og nám, einnig samþættingu í náttúrfræði og upplýsingatækni þar sem náttúrufræðiverkefni eru unnin gagngert með upplýsingatækni í huga.
Upplýsingatækni með ungum börnum
- Fjóla Þorvaldsdóttir, leikskólanum Furugrund Sagt verður frá því á hvern hátt upplýsingatækni er notuð námi barnanna í Furugrund. Leikskólinn hefur allt frá árinu 2007 lagt mikla áherslu á að gera upplýsingatækni aðgengilega fyrir öll börn. Sýndar verða m.a. “græjur” sem notaðar eru í leikskólanum.
- Birte Harksen og Sverrir J. Dalsgaard, leikskólanum Urðarhóli Kynnt verða vefsvæðin Börn og tónlist og Leikur að bókum. Vefsvæði sem eru opin öllum og allir geta verið þátttakendur í að byggja upp. Á báðum vefsvæðum er mikið notast við myndupptökur og vísað í gagnvirkt efni sem er mjög áhugavert fyrir leikskóla og yngstu bekki grunnskóla.
|
| 15:30 |
Kaffihlé – kynningar |
| 16:00 |
Vinnustofur með kynningaraðilum
Skoðað og skeggrætt, hægt að fara á milli og prófa tæki og tól eða spyrja út í notkun forrita og tækja. |
| 17:00 |
Ráðstefnuslit og veitingar: Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis. |