Close

Svona gerum við

Námsefni

Skráarumsýsla í Moodle 2

Í Moodle 2 tilheyra gögn ekki lengur einstaka áfanga heldur eru þau vistuð í miðlægt skráarsafn sem viðhaldið er af sjálfu kerfinu. þetta fyrirkomulag hefur bæði galla og kosti í för með sér.

Upplýsingar um gögnin eru skráð í innværan, dulkóðaðan gagnagrunn sem auk þess varðveitir meðfylgjandi lýsigögn, s.s. um höfund, leyfi, dagsetningu o.fl. Þetta fyrirkomulag hefur ýmsa kosti:

  • Einfalt að nota sama efnið á fleiri en einum stað í kerfinu, t.d. fleiri en einum áfanga.
  • Aðgangi að skrám er stýrt af viðkomandi kerfiseiningu (e. module) sem þar með veit nákvæmlega hvaða skrár tilheyra viðkomandi viðfangsefni. Þetta auðveldar t.a.m. afritatöku.
  • Öryggi gagna eykst þar sem aðgangur að þeim er takmarkaður á sama hátt og aðgangur að kerfiseiningum.

Til viðbótar við þessa nýbreytni í skráarumsýslu inniheldur Moodle 2 möguleika á tengingum við hvers kyns útværar gagnahirslur hvaðan einfalt er að varpa gögnum inn í áfanga. Sem dæmi um slíkar gagnahirslur má nefna Flickr, Dropbox, Box.net og einnig sérhæfð skjalasöfn eins og Alfresco.Þetta er sannarlega öflugur valkostur, en breytir því ekki að vanir Moodle notendur munu sakna einfaldleikans sem fylgdi hinum horfnu áfangaskrám.

Hér er vísun á fyrsta hluta leiðbeininga sem ég er að vinna um skráarumsýslu í Moodle 2. Athugið að leiðbeiningarnar eru ennþá á vinnslustigi, fyrst og fremst vegna þess að þýðingin á kerfinu nær ekki ennþá utan um alla þá hluti sem ég er að fjalla um. Ég mun birta fullunnið skjal og myndskeið þegar þar að kemur og að sjálfsögðu undir opnum leyfisskilmálum. Í millitíðinni ætti skjalið hér fyrir neðan að gefa greinargóða lýsingu á grunnþáttum skráarumsýslu í Moodle 2. Allar athugasemdir og ábendingar eru vel þegnar. Næsti skammtur mun svo fjalla um einkaskrár í Moodle 2.

Skráarumsýsla í Moodle 2 (pdf)


Tengt efni

Skráðu athugasemd