Close

Svona gerum við

Námsefni

Þriðji maðurinn á YouTube

Film noir hugtakið lýsir drungalegum stíl eða stemmingu í kvikmyndum sem blómstraði  í Bandaríkjunum eftir síðari heimstyrjöld. Flestar fjalla þær um glæpasamlegri hliðar mannlegs samfélags og oftar en ekki með stórborgina sem skuggalegan bakgrunn fyrir vafasamar persónur bæði karla og konur.

Film noir kvikmyndir eru heillandi viðfangsefni og hafa í gegnum tíðina veitt ófáum leikstjóranum innblástur. Klassískar Film Noir myndir eru m.a. Citizen Kane, The Maltese Falcon og Double Indemnity.

Ein þekktasta breska Film Noir kvikmyndin er án efa The Third man (frumsýnd 2. september 1949), gerð eftir handriti Graham Greene og leikstýrð af Carol Reed. Sagan gerist í Vínarborg skömmu eftir síðari heimstyrjöldina segir frá Holly nokkrum Martins sem kemur staurblankur til Vínarborgar að hitta félaga sinn Harry Lime sem hafði lofað honum vinnu. Við komuna til Vínarborgar verður Martins fljótlega ljóst að Lime er ekki allur þar sem hann er séður og af stað fer margslungin atburðarrás.

Þriðji maðurinn skartar í aðalhlutverkum þeim Joseph Cotten og Orson Welles sem áður höfðu leitt saman hesta sína í meistaraverkinu Citizen Kane. Kvikmyndin er stórkostlegt listaverk, kvikmyndatakan og lýsingin frábær og tónlistin einfaldlega ógleymanleg. Þekktasta setning kvikmyndarinnar er algjör gersemi:

“You know what the fellow said – in Italy, for thirty years under the Borgias, they had warfare, terror, murder and bloodshed, but they produced Michelangelo, Leonardo da Vinci and the Renaissance. In Switzerland, they had brotherly love, they had five hundred years of democracy and peace – and what did that produce? The cuckoo clock.”

Þriðji maðurinn er til í heild sinni á YouTube ásamt fjölmörgum öðrum Film noir kvikmyndum.




Tengt efni

Skráðu athugasemd