Líkt og svo fjölmargir aðrir netverjar treysti ég Flickr fyrir ljósmyndasafninu mínu og hef gert í mörg ár. Ég er að mestu leyti sáttur við þjónustuna en finnst nokkuð hafa skorta upp á hvað varðar þróun og nýsköpun þar á bæ. Þessa dagana er ég að skoða 500px, nýja þjónustu sem hlotið hefur töluverða athygli undanfarið og líst bara nokkuð vel á.
Þess ber að geta að 500px vefurinn er ekki nýr af nálinni. Vísir að honum var stofnaður sem samfélag ljósmyndara af félögunum Oleg Gutsol og Ian Sobolev á Livejournal árið 2003. Árið 2005 var svo búinn til sérstakur vefur fyrir samfélagið sem síðan var opnaður almenningi árið 2009.

500px var upphaflega hugsaður sem samfélag ljósmyndara og þegar vefurinn er heimsóttur í dag blasa við myndir sem vel gætu sómt sér í albúmi fólks sem hefur ljósmyndun að atvinnu. 500px er enda vinsæll meðal atvinnuljósmyndara og að mörgu leyti sniðinn að þeirra þörfum. Bræðurnir Will og Matt Burrard-Lucas eru ágætt dæmi um atvinnuljósmyndara sem nýta 500px til að koma sér á framfæri.

500px hefur vandaðra yfirbragð en Flickr og það er eins og myndirnar fái meira andrými til að njóta sín. Það sést vel á myndinni hér fyrir neðan. Það er Like og Dislike hnappur á 500px og meðlimir virðast mjög virkir í að kynna sér verk annarra.
Á hinn bóginn hefur Flickr ýmislegt til síns ágætis og mun fleiri eiginleika heldur en 500px. Á Flickr er t.a.m. hægt að staðsetja myndir á korti og tengja persónu við mynd.
Aðgangur að 500px er ókeypis fyrir allt að 20 ljósmyndir á viku að hámarki 30MB hver mynd. Þurfir þú á meira plássi að halda er hægt að kaupa aukinn aðgang fyrir 50$ á ári. Það er tvöfallt meira en sambærilegur aðgangur kostar á Flickr.
Ég er búinn að stofna minn eigin aðgang á 500px og ætla að hýsa þar ljósmyndir sem ég er sérstaklega ánægður með. Flickr hentar betur að mínu viti fyrir almenna myndatöku þrátt fyrir slíkum myndum sé að sjálfsögðu ekki úthýst á 500px.
Ég mæli sérstaklega með 500px fyrir kennara og nemendur sem þurfa á stafrænum ferlimöppum að halda, t.d. í listgreinum, s.s. ljósmyndun. Þar er 500px eins og kjörið.



