Liveminutes er glænýr vefráðstefnuvettvangur og nokkuð áhugaverður svona við fyrstu sýn. Notendaviðmótið er stílhreint og aðgengilegt og þjónustan er hraðvirk.
Liveminutes er ókeypis þjónusta og ég kann virkilega vel við hversu einfaldur vefurinn er í notkun. Notendur hafa val um að skrá sig fyrir aðgangi eða hefja netfund án nokkurrar skráningar. Kosturinn við skráningu er sá helstur sá þá fá notendur frítt geymslupláss fyrir skjöl auk þess sem þeir geta kallað fram yfirlit eða skýrslur um fundi.
Enn sem komið er þá er verkfærasafnið frekar fátæklegt, en það sem er til staðar virkar ágætlega. Þannig inniheldur Liveminutes hefðbundna töflu (e. whiteboard), spjall, hægt er að skoða landakort og flytja inn skjöl af ýmsum tegundum til birtingar á fundinum. Ekki er hægt að deila myndskeiðum og notendur geta ekki deild því sem fram fer á tölvum sínum (e. screensharing). Netfundir í Liveminutes eru með hljóði og hægt er að nýta vefmyndavél ef slík græja er til staðar.
Einn er sá eiginleiki í Liveminutes sem ég vek sértaka athygli á og þjónustan tekur sjálfkrafa upp fundinn í heild sinni í slideshow. Þegar þetta er skrifað veit ég ekki hvað Liveminutes ræður við marga gesti í rauntíma, en ekki er mælt með fleiri en 10 samtíma notendum.
Ég býst fastlega við að kostuð útgáfa af Liveminutes líti dagsins ljós í náinni framtíð. Það er mjög algengt viðskiptalíkan í dag að bjóða upp á ókeypis útgáfu af netlægum hugbúnaði samhliða greiddri þjónustu sem þá inniheldur aukna möguleika. Aðilarnir sem standa að Liveminutes lofa því hátíðlega að ókeypis útgáfan verði öllum ókeypis að eilífu, hvorki meira né minna.
Liveminutes er að sjálfsögðu ekki eina netfundakerfið á markaðinum og ekki heldur það eina sem er ókeypis. Það er hins vegar áhugavert og óvenju þroskað miðað við fyrstu útgáfu.





Sæll Fjalar.
Ég þakka þér fyrir góða stjórn á ágætri ráðstefnu menntamálaráðuneytisins um opið menntaefni. Gætirðu sent mér upplýsingar um / slóða til netfundakerfa sem þú telur vera áhugaverð? Það skaðar ekki ef þau falla undir að vera opið menntaefni, að ég tali ekki um ef þau falla undir að var frjáls hugbúnaður.
Salvör K Gissurardóttir sendi mér þessa slóð, sem leiddi mig inn á þitt vefsetur, en við erum að leyta að hentugu veffundakerfi fyrir Fjarnámsbraut í umhverfis- og auðlindafræði.
Kveðja
Halldór