Væntingarhringrásin er myndræn framsetning á þroska, innleiðingu og félagslegum viðtökum tækninýjunga og gefur, ef byggt er á áreiðanlegum gögnum, greinargóðar vísbendingar um núverandi stöðu og framtíðarþróun. Með aðstoð væntingarhringrásarinnar má greina hvort og hvernig einstök tækninýjung nær að yfirstíga uppblásnar væntingar sem svo oft fylgja spennandi tækninýjungum og komast í almenna notkun.

Væntingarhringrás Gartners skiptist í fimm aðgreinda hluta.
- Hringrásin hefst þegar ný tækni er kynnt til sögunnar (e. technology trigger). Það getur gerst á ýmsan hátt, s.s. með blaðamannafundi, fréttatilkynningu, opnunarhátíð, kynningu eða öðru því sem skapar umtal og veldur viðbrögðum hjá áhrifafólki, fjárfestum og markaðsöflunum.
- Smátt og smátt fara væntingar til tækninnar vaxandi þangað til svo kölluðum hápunkti uppblásinna væntinga (e. Peak of Inflated Expectations) er náð. Þessi tími einkennist af hástemmdum yfirlýsingum, mikilli umfjöllun og gjarnan mjög svo óraunverulegum framtíðarspám.
- Þegar hátindi uppblásinna væntinga er náð fer oftar en ekki að halla undan fæti. Yfirdrifnar yfirlýsingar um ágæti tækninýjungar gagnast lítið þegar varan, sem enn er í þróun, nær ekki að standa við undir væntingum. Leiðin liggur því hratt niður á við þangað til botninum er náð (e. Trough of disillusionment). Á þessum tímapunkti er áhugi markaðsaflanna í lágmarki og tæknin lítt til umfjöllunar í fagritum, ráðstefnum eða á vefnum.
- Þegar vel tekst til verður markvisst þróunarstarf, elja og vinnusemi til þess að raunverulegir eiginleikar, notagildi og áhættuþættir tækninnar koma smám saman í ljós. Þróunarstarf verður markvissari með tilkomu nýrra verkfæra og aðferða og tækninýjungin mjakast hægt upp brekku upplýsingarinnar (e. Slope of enlightenment).
- Nú hefur tæknin náð að sanna sig hvað notagildi varðar og fest sig í sessi á markaði. Önnur og þriðja kynslóð verkfæra og aðferða hafa litið dagsins ljós og náð ágætis þroska. Þessi tími nefnist háslétta framlegðarinnar. Hversu háu flugi tæknin nær veltir oft á því hvort hún höfðar til breiðs hóps notenda eða nýtist á afmarkaðri sviðum.
Á hverju ári birtir Gartner fjölda væntingarhringrása sem flestar eru aðgengilegar gegn gjaldi. Ein fróðleg undantekning er þó á þeirri reglu, nefnilega sérstök árleg skýrsla yfir tækninýjungar sem eru í deiglunni undir titlinum “Gartner’s 2011 Hype Cycle Special Report”. Skýrsluna má nálgast í heild sinni hér og er hún hin forvitnilegasta lesning (athugið að skráningar er krafist). Hér fyrir neðan má sjá mynd úr skýrslunni fyrir árið 2011.
Væntingarhringrás Gartners var fyrst kynnt til sögunnar árið 1995 og þykir af mörgum ágætt til síns brúks, en hefur eins og gengur og gerist fengið sinn skerf af gagnrýni. Meðal annars hefur verið bent á að í raun sé ekki um hringrás að ræða heldur ferli og það ferli sem hefur í reynd takmarkað forspárgildi.
Áhugi minn á væntingarhringrásinni felst öðru fremur í því að nýta hana sem verkfæri til að sjá stöðu hinna ýmissa tækninýjunga, t.a.m. til að átta sig á notagildi í skólastarfi.
Heimildir:
- Interpreting Technology Hype
- Gartner Adds Big Data, Gamification, and Internet of Things to Its Hype Cycle
- Mastering the Hype Cycle



