Close

Svona gerum við

Námsefni

Er framtíð kennslubókarinnar í höndum Apple?

iBooks Author, nýjasta útspil Apple, er til þess hugsað að umbylta kennslubókum á ekki ósvipaðan hátt og fyrirtækið umbylti tónlistarmarkaðinum á sínum tíma.

iBooks Author er ókeypis hugbúnaður ætlaður almennum notendum sem vilja setja saman gagnvirkar margmiðlunarbækur fyrir iPad spjaldtölvuna. Hann er aðgengilegur og einfaldur í notkun enda er hugmyndin sú að allir sem áhuga hafi geti sett saman eigið efni til útgáfu og birtingar á iPad.

Samhliða útgáfunni á iBooks Author kynnti Apple nýja kynslóð af bókalesaranum sínum, iBooks 2, sem keyrir á iPad og er nauðsynlegur til að birta margmiðlunarefnið sem unnið er í iBooks Author. Með þessum aðgerðum má segja að Apple hafi lokað hringnum hvað námsbækur varðar og hafi nú alla þræði í hendi sér, þ.e. verkfæri til að setja saman kennsluefni, vettvang til að miðla efni og vélbúnað til að birta það.

Góðu fréttirnar

iBooks Author virðist virkilega spennandi verkfæri sem gerir nánast hverjum sem er kleift að setja saman gagnvirkt kennsluefni til nota með iPad spjaldtölvunni. Ég hef séð sýnishorn af rafbók sem unnin er á þennan hátt og birt í iBooks 2 og þetta er sannarlega bylting í bókagerð. Bók sem unnin er með iBooks Author getur m.a. innihaldið html einingar samhliða textanum, myndasöfn, Keynote glærusýningar, gagnvirkar myndir, þrívíðar myndir, myndskeið og kaflapróf (e. chapter reviews). Gott yfirlit yfir þessa eiginlega má finna hér á vef Apple. Ekki skemmir fyrir að iBooks Author er ókeypis hugbúnaður auk þess sem Apple skaffar öruggan og öflugan dreifingarmáta (iTunes) og birtingarmáta (iPad).

Slæmu fréttirnar

iBooks Author er því miður einvörðungu fáanlegt fyrir Apple tölvur og ég efast stórlega um að fyrirtækið ætli sér að þróa útgáfu fyrir Windows stýrikerfið. Þetta er kannski skiljanleg ákvörðun hjá fyrirtæki sem er á markaði til að græða peninga, en takmarkar engu að síður mjög aðgengi að forritinu sem er slæmt.

Í annan stað þá loga netheimar yfir vægast sagt yfirgengilegum skilmálum sem fylgja notkun forritsins. Þannig er að sá sem hannar efni með iBooks Author hefur tvo kosti hvað útgáfu varðar. Hann getur annað hvort gefið höfundarverk sitt hverjum sem hann vill endurgjaldslaust eða selt. Öll sala verður hins vegar, samkvæmt notendaskilmálum hugbúnaðarins, að fara fram í gegnum Apple sem tekur 30% í sinn hlut. Þetta er því fullkomlega lokaður vettvangur og kjósi höfundar að nýta sér hann eru þeir læstir í viðjum Apple á öllum stigum málsins. Það er mjög slæmt.

Í þriðja lagi notast Apple við lokaðan staðal við útgáfu á efni sem unnið er með iBooks Author. Samkvæmt þeim skrifum sem ég hef lesið um þetta efni virðist Apple að mestu leyti styðjast við epub 3 staðalinn en breyta samt nógu mikið frá honum til að gera bækur sem gefnar eru út fyrir iBooks 2.0 ólæsilegar á öðrum vettvangi.

Framtíð kennslubókarinnar

Apple hefur löngum haft sterkar taugar til skólakerfisins og því verður ekki neitað að framlag þeirra til náms og kennslu hefur í gegnum tíðina verið umtalsvert. Til að styrkja stöðu sína á bókamarkaði þar sem þeir keppa við risa á borð við Amazon er því fullkomlega eðlilegt og í raun stórsniðugt að sækja á skólamarkaðinn sem er ekki bara stór heldur “ripe for revolution” eins og kaninn segir gjarnan. Mér hugnast hins vegar lítt lokaðir staðlar og læst kerfi og því miður virðast hæstráðendur Apple sjá skólakerfið öðru fremur sem tækifæri til að selja enn fleiri tölvur. Það má meira en vel vera að framtíð kennslubókarinnar sé stafræn en sú framtíð getur aldrei verið eign eins fyrirtækis hversu framsækið það kann að vera.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

  1. Framtíð kennslubókarinnar01-27-12