Desmos er draumaverkfæri stærðfræðikennarans, einfalt í notkun og mjög öflugt. Ég get vel séð svona verkfæri fyrir mér í kennslu í efri bekkjum grunnskólans, í framhaldsskóla og örugglega háskóla. Þar sem hér er um að ræða HTML 5 lausn en ekki flash þá virkar hún vel á iPad og það er greinilegt að þróun í nútíma vefsmíðum er flash mjög í óhag.
Innskráðir notendur geta vistað gröf og útreikninga á eigin svæði (e. my graphs) og deilt með öðrum. Smelltu hér til að sjá hvernig hægt er að vista gröf og senda á aðra notendur. Þetta er einfaldlega frábær kostur í skólaumhverfinu. Gröf má einnig vista sem myndir á png sniðinu.
Þegar þetta er skrifað virkar Desmos Internet Explorer 9+, Chrome, Firefox 4+ og Safari 3+. Ég prufaði hugbúnaðinn í Chrome og iPad og það gekk eins og í sögu. Ég prufaði Desmos einnig á iPhone en það gekk ekki.


