Þegar þetta er skrifað er hægt að velja um 58 tungumál á YouTube vefnum og er íslenska eitt þeirra. Þegar kennarar vísa á YouTube vefinn í kennslu eða birta slóð að myndskeiði á YouTube er kjörið að gera það með íslensku notendaviðmóti.
Einfaldasta leiðin til að skipta yfir á íslensku í YouTube er að skruna neðst á skjáinn og smella á tungumálahnappinn lengst til vinstri. Birtist þá listi yfir öll tungumálin hvaðan hægt er að velja íslenskuna.
Einnig má skipta um tungumál á notendaviðmótinu með því að setja &hl=is aftan við slóðina að myndskeiði. Þannig getur kennari sent nemendum slóð að myndskeiði og tryggt að viðmótið sem mætir þeim sé íslenskt.
Hér fyrir neðan má sjá tvær slóðir að YouTube myndskeiði. Fyrri slóðin birtir myndskeiðið með ensku notendaviðmóti en hin síðari með íslensku.
- http://www.youtube.com/watch?index=3&list=UUyNvsv6w9CYoWHyns-rFpHw&feature=plcp&hl=en-GB&v=_943XB4gcN4
- http://www.youtube.com/watch?v=_943XB4gcN4&list=UUyNvsv6w9CYoWHyns-rFpHw&index=3&feature=plcp&hl=is
Athugið að ekki er hægt að bæta &hl=is við allar slóðir, t.a. mynda virkar það ekki á stuttu slóðirnar sem YouTube býr til þegar notendur deila myndskeiðum.



