Það verður bara að segjast eins og er að þegar kemur að hönnun notendaviðmóta þá komast sérfræðingarnir í Microsoft ekki með hælana þar Steve Jobs og félagar hans hjá Apple hafa tærnar. Til allrar lukku fyrir Windows notendur, þ.e. skólakerfið eins og það nánast leggur sig, hafa hinir ýmsu aðilar tekið sig til og endurskapað [...]
Jakob Nielsen er einn helsti sérfræðingur samtímans á sviði vefhönnunar og notagildisfræða vefsins. Á hverju ári tekur Nielsen saman lista yfir það sem hann kallar Top tíu mistök í vefhönnun og tekur þar m.a. mið af niðurstöðum umfangsmikilla rannsókna sinna. Hér má sjá hvað helst angrar Nielsen á árinu 2006 þegar vefhönnun er annars vegar:
Alþjóðdagur fatlaðra var haldinn hátíðlegur þann 3. des. sl. og var yfirskrift dagsins að þessu sinni aðgengi að rafrænum upplýsingum eða “E-accessibility”. Takið eftir að ég nota ekki orðalagið “aðgengi fatlaðra” því traust aðgengi að rafrænum upplýsingum er hagsmunamál okkar allra.
Á ráðstefnunni “Aðgengi að netinu: Hvar erum við stödd”, sem haldin var þann 14. nóv. síðastliðinn, kynnti Hugsmiðjan nýja þjónustu sem nefnist Stillingar.is.
Stillingar.is er vefþjónusta fyrir eigendur vefsvæða sem vilja koma til móts við þarfir fólks sem á erfitt með að lesa, t.d. vegna lesblindu, sjóntruflana eða sjónskerðingar, og þarf að geta valið lita- og [...]
Samkvæmt tölum frá árinu 2001 eru fleiri Bretar í aldurshópnum 60 ára og eldri heldur en 16 ára og yngri. Það er því sannarlega mikilvægt að rannsaka hagnýtingu og aðgengi eldri notenda að vefnum. Hér eru helstu niðurstöður einnar slíkrar.