Moodle fær glæsilegan vitnisburð í spánnýrri könnun ElearningGuild þar sem m.a. var reynt að meta ánægju notenda með netbundin námsumhverfi. Þátttakendur í rannsókninni voru rúmlega 2300. Í rannsókninni fær Moodle hugbúnaðurinn mun betri dóma en aðrar og dýrkeyptari lausnir sem innleiddar hafa verið m.a. við íslenska skóla. Hér má nefna bæði Angel og Blackboard/WebCT.
Blackboard sendi í dag frá sér fréttatilkynningu þar sem því er heitið að beita aldrei umdeildu einkaleyfi fyrirtækisins (og öðrum sem enn bíða afgreiðslu) á grunnþáttum námsstjórnunarkerfa (course management systems) gegn opnum hugbúnaði eða heimasmíðuðum lausnum á sviði netbundinna námsumhverfa svo lengi sem viðkomandi kerfi eru ekki hluti af séreignahugbúnaði.
Þær fréttir berast nú frá vesturheimi að illræmt einkaleyfi Blackboard fyrirtækisins á grunnþáttum netbundinna námsumhverfa verði endurskoðað af einkaleyfisstofu þeirra Bandaríkjamanna. Ósk um endurskoðun var komið á framfæri nýlega af Software Freedom Law Center fyrir hönd Sakai stofunarinnar, Moodle samfélagsins og ATutor samfélagsins.
Viðbrögð netverja við einkaleyfi Blackboard á grunnþáttum námsstjórnunarkerfa og lögsókn þess í kjölfarið á hendur kanadíska fyrirtækinu Desire2Learn, framleiðanda samnefnds námsstjórnunarkerfis, hafa einkennst af vantrú, hneykslan og fordæmingu. Blackboard stendur nú eitt og utangarðs rúið trausti og tiltrú hins akademíska samfélags eins og það endurspeglast á Netinu.
Umfjöllunin á Netinu fer fram á opinberum jafnt sem [...]
Í kjölfar einkaleyfis Blackboard í Bandaríkjunum á helstu grunnþáttum námsstjórnunarkerfa hefur áhugafólk og fagaðilar víðsvegar um heiminn tekið saman heimildir um sögu námsstjórnunarkerfa á Wikipedia. Framtakið er liður í baráttu grasrótarinnar gegn einokunartilburðum Blackboard og miðar að því að sanna að virkni sú og eiginleikar sem fyrirtækið hefur eignað sér hafi verið til staðar áður [...]
Áhugaverð umræða á Ed Tech Talk um DOPA og einkaleyfi Blackboard á námsstjórnunarkerfum.
Blackboard hefur lagt fram kæru á hendur Desire2Learn fyrirtækinu sem stendur að þróun og sölu á samnefndu námsstjórnunarkerfi sem notið hefur töluverðra vinsælda í Bandaríkjunum undanfarin ár. Lögsóknin kemur beint í kjölfar umfangsmikils einkaleyfis Blackboard í Bandaríkjunum á hefðbundinni virkni námsstjórnunarkerfa (LMS/CMS). Einkaleyfið þykir afar vafasamt svo ekki sé fastar að orði kveðið en segja [...]
Blackboard fyrirtækið, framleiðandi samnefnds námsstjórnunarkerfis, hefur fengið einkaleyfi í Bandaríkjunum á netbundnu námsstjórnunarkerfi eða “Internet-based education support system and methods ” eins og segir í einkaleyfinu. Blackboard hefur einnig sótt um sambærilegt einkaleyfi í löndum Evrópusambandsins, Kína, Japan, Kanada, Ástralíu, Singapore, Nýja Sjálandi, Indlandi, Mexíkó, Suður Kóreu, Hong Kong og Brasilíu.
Blackboard fyrirtækið þykist með öðrum [...]
Ég er áhugamaður um opinn hugbúnað. Höfum það alveg á hreinu. Hugmyndafræðin, heimspekin og aðferðafræðin við þróun opins hugbúnaðar höfðar alveg sérstaklega til mín eins og svo fjölmargra annara. Kannski er það mannlegi þátturinn sem heillar mig svo, öll þessi óteljandi samfélög notenda þar sem ólíkustu einstaklingar sameinast um lausn hinna fjölbreyttustu viðfangsefna. Ef til [...]
Lectopia er áhugaverð lausn sem þróuð hefur verið við Háskólann í vestur Ástralíu og tæplega 30% háskóla í Ástralíu nota til þess þess að taka upp og dreifa fyrirlestrum á Netinu. Michael Fardon, einn upphafsmanna verkefnisins, flutti mjög góðan fyrirlestur um Lectopia á Educause 2005 ráðstefnunni síðasta vetur, sem hann nefndi “Distributed Learning Utilizing On-Demand [...]