Eldra efni: blogg

Kathy Sierra og siðareglur bloggara - Fyrri hluti

Skráð 10 April 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Kathy Sierra er kunn af góðu einu. Hún er forritari, fyrirlesari, annar skapari hinna vinsælu Head First tölvubóka og þar að auki öflugur og vinsæll bloggari. Vefur hennar Creating Passionate Users er einn fjölmargra vefja sem ég fylgist vel með og les reglulega mér til bæði ánægju og fróðleiks. Í síðari hluta marsmánaðar þessa árs [...]


Náttúrufræðiblogg Ragnars Þórs Péturssonar

Skráð 29 November 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Ég mæli eindregið með því að kennarar kíki á bloggið hans Ragnars Þórs Péturssonar sem kennir náttúrufræði við Borgarhólsskóla.


Notkun á bloggi í kennslu - glærukynning

Skráð 01 November 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Ég mæli með glærukynningu Sigurbjargar Jóhannesdóttur um notkun á bloggi í kennslu sem hægt er að sækja á vef hennar www.sibba.is.


Microsoft kynnir Windows Live Writer

Skráð 20 August 2006
Flokkur: Microsoft, blogg
Engar athugasemdir frá lesendum

Windows Live Writer er nýr hugbúnaður sem einfaldar bloggurum lífið með því að gera þeim kleift að skrá færslur í einföldu ritvinnsluumhverfi og senda síðan á Netið þegar þær eru fullbúnar. Live Writer styður við Windows Live Spaces bloggþjónustuna en einnig aðrar algengar þjónustur eins og Wordpress, TypePad, Blogger, LiveJournal og fleiri.
Á myndinni hér [...]


Blogg sem kennslutæki

Skráð 01 May 2006
Flokkur: Asides, blogg
Engar athugasemdir frá lesendum

The mistaken identity of blogging: why educators are missing out! Mjög góður pistill um blogg í kennslu.


ELGG - MOODLE - FB

Skráð 31 December 2005
2 athugasemdir frá lesendum

Elgg er að mínu viti eitt mest spennandi þróunarverkefni sem verið er að vinna að um þessar mundir á sviði hagnýtra netsamfélaga í námi og kennslu. Hönnuðir Elgg, þeir Ben Wedmuller og David Tosh, nota orðið “Learning landscape” yfir sköpunarverk sitt, sem beinast liggur við að þýða sem námslandslag á íslensku, en aðrar hugmyndir eru [...]


Performancing - öflug viðbót fyrir Firefox

Skráð 23 December 2005
3 athugasemdir frá lesendum

Performancing for Firefox er mjög hentug viðbót (e. plugin) við Firefox vafrann sem einfaldar bloggurum lífið með því að gera þeim kleift að skrá færslur á nokkur helstu bloggkerfin (s.s. Blogger, Typepad, Movable Type og Wordpress) sem eru í notkun í dag, án innskráningar og án þess að yfirgefa vefskoðarann. Performancing vinnur á Firefox [...]


Edublog verðlaunin afhent í annað skiptið

Skráð 19 December 2005
Engar athugasemdir frá lesendum

Edublog verðulaunin er alþjóðleg viðurkenning sem veitt er fyrir bestu bloggvefina á vettvangi skólastarfs, náms og kennslu. Upphafsmaður verðlaunanna er James Farmer, en þau voru fyrst afhent á síðasta ári.
Edublog verðlaunin eru afhent árlega. Hér að neðan er yfirlit yfir sigurvegarana í ár, en þeir voru valdir úr eftirfarandi tilnefningum.

Frumlegasta bloggverkefnið eða þjónusta (Most innovative [...]


Google prufukeyrir Blogg leitarvél

Skráð 15 September 2005
Flokkur: Google, blogg
Engar athugasemdir frá lesendum

Google hefur opinberað beta útgáfu (tilraunaútgáfu) af nýrri leitarvél sem leitar einvörðungu að efni á bloggvefjum/vefdagbókum. Leitarvélin heitir einfaldlega Google-Blog Search og er aðgengileg á slóðinni http://www.google.com/blogsearch.


Blogg í kennslu

Skráð 18 July 2005
Flokkur: blogg
Engar athugasemdir frá lesendum

Hafi einhverjir kennarar efasemdir um hagnýtingu vefdagbóka/bloggvefja í kennslu þá ráðlegg ég þeim að horfa á meðfylgjandi 5 mínútna myndskeið þar sem nemendur og kennarar fjalla um kynni þeirra af bloggi í námi og kennslu.


Úr myndasafninu

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”. (0)
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    (0)
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    (0)
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
    (0)
  • Gagn og gaman